Áróra Eitt verkanna í Flóru.
Áróra Eitt verkanna í Flóru.
Sýningu Sigrúnar Guðmundsdóttur sem nefnist Nætur(b)rölt lýkur á morgun kl. 14, en hún er til sýnis í Flóru á Akureyri. Sigrún býr og starfar í Rotterdam í Hollandi.
Sýningu Sigrúnar Guðmundsdóttur sem nefnist Nætur(b)rölt lýkur á morgun kl. 14, en hún er til sýnis í Flóru á Akureyri. Sigrún býr og starfar í Rotterdam í Hollandi. Hún lauk myndlistarnámi frá AKI í Enschede 2008 en var einnig í skiptinámi í School of the Museum of Fine Arts í Boston. Í tengslum við sýninguna gaf Sigrún út bók sem ber sama titil og sýningin, en hugtök verka hennar endurspeglast á ákveðinn hátt í sögunni. Bókin samanstendur af örsögum og hugrenningum sem saman mynda eina smásögu. Allar nánari upplýsingar á vefnum sigrungudmundsdottir.com.