Eyrir Invest mun greiða upp allan skuldabréfaflokkinn EYRI 11 í lok september. Fyrirtækið hefur greitt allar aðrar skammtímaskuldbindingar og er nú að fullu langtímafjármagnað.
Eyrir Invest mun greiða upp allan skuldabréfaflokkinn EYRI 11 í lok september. Fyrirtækið hefur greitt allar aðrar skammtímaskuldbindingar og er nú að fullu langtímafjármagnað. Hluti af uppgreiðslum annarra skulda var háður heimild frá Seðlabanka Íslands til að greiða upp erlendar skammtímaskuldbindingar fyrir lokagjalddaga. Sú heimild hefur nú fengist, segir í tilkynningu.