Emil Atlason
Emil Atlason
„Emil er spennandi leikmaður,“ sagði Michael Frontzeck, þjálfari þýska B-deildarliðsins St. Pauli, sem framherjinn Emil Atlason hefur síðustu daga verið til reynslu hjá.

„Emil er spennandi leikmaður,“ sagði Michael Frontzeck, þjálfari þýska B-deildarliðsins St. Pauli, sem framherjinn Emil Atlason hefur síðustu daga verið til reynslu hjá. Emil hefur farið á kostum með U21-landsliði Íslands í yfirstandandi undankeppni EM og hann lék 21 leik fyrir Íslandsmeistara KR í Pepsideildinni í knattspyrnu í sumar.

„Honum hefur gengið vel, þótt deildin á Íslandi sé reyndar ekki atvinnumannadeild. Landsliðið þar á möguleika á að komast á HM og yngra liðinu gengur líka vel,“ sagði Frontzeck við Hamburger Abendblatt. Blaðið segir að St. Pauli megi þó búast við samkeppni um Emil, til að mynda frá Englandi, en hann hefur verið orðaður við Stoke og Southampton. sindris@mbl.is