Vocal Project Flottur poppkór.
Vocal Project Flottur poppkór.
Á morgun, föstudag, munu 15 einsöngvarar úr poppkórnum Vocal Project koma fram á skemmtistaðnum SPOT í Kópavogi ásamt rokkaðri hljómsveit. Lofað hefur verið fjölbreyttum og skemmtilegum tónleikum sem enginn aðdáandi VP má láta fram hjá sér fara.

Á morgun, föstudag, munu 15 einsöngvarar úr poppkórnum Vocal Project koma fram á skemmtistaðnum SPOT í Kópavogi ásamt rokkaðri hljómsveit. Lofað hefur verið fjölbreyttum og skemmtilegum tónleikum sem enginn aðdáandi VP má láta fram hjá sér fara. Poppkórinn sjálfur kemur einnig fram og syngur nokkur vel valin lög.

Hljómsveitina skipa Friðþjófur Ísfeld, bassi; Matthías V. Baldursson, hljómborð og sax; Þorbergur Ólafsson, trommur; Þorgils Björgvinsson, gítar. Tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 22:30.