Erfitt starf. A-Enginn
Norður | |
♠K102 | |
♥43 | |
♦ÁKD5 | |
♣ÁD85 |
Vestur | Austur |
♠Á9743 | ♠G8 |
♥KG876 | ♥Á1092 |
♦106 | ♦G872 |
♣2 | ♣G43 |
Suður | |
♠D65 | |
♥D5 | |
♦943 | |
♣K10976 |
Starf spámannsins er erfitt, jafnvel með allar upplýsingar á borðinu. Einn skýrandinn á BBO taldi fullvíst að Claudio Nunes færi niður á 4♣ – gæfi tvo slagi á hjarta og tvo á spaða eftir misheppnaða svíningu á ♠10. Spádómurinn rættist ekki.
Spilið er frá leik Englands og Mónakó. Eftir pass í austur og suður, opnaði Tony Forrester í þriðju hendi á einu HJARTA. Fulvio Fantoni doblaði og Andy Robson stökk hindrandi í 3♥. Aftur doblaði norður og Nunes í suður sagði 4♣. Allir pass, hjarta út upp á ás, hjarta til baka á kóng, svo tígull.
Nunes tók þrisvar tromp, hæstu tígla og trompaði þann fjórða. Spilaði svo spaða á KÓNG og litlum spaða á gosa, drottningu og ás. Af hverju?
Af því að vestur var upptalinn með 5-5 í hálitunum og opnaði útspilsvísandi á hjarta, ekki spaða. Hefði hann gert það með ás-GOSA-fimmta í spaða? Nunes hélt ekki.