Marta Guðjónsdóttir varaborgarfulltrúi sækist eftir 3. sætinu á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. „Ég legg áherslu á skilvirkar og öruggar samgöngur í borginni og á milli Reykjavíkur og landsbyggðar.

Marta Guðjónsdóttir varaborgarfulltrúi sækist eftir 3. sætinu á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor.

„Ég legg áherslu á skilvirkar og öruggar samgöngur í borginni og á milli Reykjavíkur og landsbyggðar. Ég er andvíg því að Reykjavíkurflugvöllur verði lagður niður eða fluttur úr Vatnsmýrinni. Flugvöllurinn er eitt stærsta hagsmunamál Reykvíkinga.“

Marta var m.a. formaður Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, á árunum 2007-2010, fyrsta konan til að gegna því embætti.