Maríusögur Margt skemmtilegt og skondið gerist í leikriti Þorvaldar.
Maríusögur Margt skemmtilegt og skondið gerist í leikriti Þorvaldar.
Leikfélag Selfoss fumsýnir á morgun, föstudag, í Litla leikhúsinu við Sigtún, gamansama harmleikinn Maríusögur eftir Þorvald Þorsteinsson. Leikstjóri er Guðfinna Gunnarsdóttir.

Leikfélag Selfoss fumsýnir á morgun, föstudag, í Litla leikhúsinu við Sigtún, gamansama harmleikinn Maríusögur eftir Þorvald Þorsteinsson. Leikstjóri er Guðfinna Gunnarsdóttir.

Leikritið gerist á (æsku)heimili Stefaníu, hugulsömu húsmóðurinnar, og Þráins, eiginmanns hennar. Tilefnið er fráfall föður Stefaníu. Marteinn bróðir hennar er þar mættur, eftir margra ára dvöl í Svíþjóð, og er alls ekki kátur þegar María, æskuvinkona þeirra systkina, kemur í heimsókn með nýjasta kærastann.

Stefanía gerir allt hvað hún getur til að halda umræðunum frá því sem ekki má ræða en hættulegt leyndarmálið kemur að lokum upp á yfirborðið og María fær loks tækifæri til að gera upp syndir fortíðarinnar, eða svo heldur hún.

Næstu sýningar eru sunnudaginn 27. okt., fimmtudaginn 31. okt., föstudag 1. nóv., sunnudag 3. nóv., fimmtudaginn 7. nóv., föstudag 8. nóv. og lokasýning er laugardaginn 9. nóv. Miðapantanir í síma 482-2787 og á leikfelagselfoss@gmail.com.