Veiði Þorskur veiddur á stöng.
Veiði Þorskur veiddur á stöng.
Um 136 tonn af fiski veiddist á þeim sextán stangveiðimótum sem haldin hafa verið í ár, samkvæmt upplýsingum Fiskistofu. Þar eru talin með bæði innanfélagsmót og mót milli stjóstangveiðifélaga. Uppistaðan í aflanum var þorskur, eða um 82%.

Um 136 tonn af fiski veiddist á þeim sextán stangveiðimótum sem haldin hafa verið í ár, samkvæmt upplýsingum Fiskistofu. Þar eru talin með bæði innanfélagsmót og mót milli stjóstangveiðifélaga.

Uppistaðan í aflanum var þorskur, eða um 82%.

Samkvæmt lögum er ráðherra heimilt að ákveða árlega að á tilteknum fjölda opinberra sjóstangveiðimóta teljist afli ekki til aflamarks eða krókaaflamarks. Afla þessara móta er ekki heimilt að fénýta til annars en að standa straum af kostnaði við mótshaldið. Fiskistofa fær upplýsingar um þau mót sem heimilt er að halda undir þessum formerkjum og safnar og skráir upplýsingar um afla þeirra.