Michael Schumacher
Michael Schumacher
Þýski F1-ökuþórinn Michael Schumacher var á hraða „góðs skíðamanns“ á nokkuð hörðu undirlagi þegar hann rakst á stein og datt. Engu að síður telur teymi sem rannsakað hefur slysið sem varð þess valdandi að hann hefur legið í dái frá 29.

Þýski F1-ökuþórinn Michael Schumacher var á hraða „góðs skíðamanns“ á nokkuð hörðu undirlagi þegar hann rakst á stein og datt. Engu að síður telur teymi sem rannsakað hefur slysið sem varð þess valdandi að hann hefur legið í dái frá 29. desember að hvorki hraðinn, skíðin né merkingar á skíðabrautinni hafi valdið slysinu.

Patrick Quincy, saksóknarinn sem fer fyrir rannsókninni, sagði á blaðamannafundi í gær að allar reglur um merkingar á skíðabrautum hefðu verið virtar og að Schumacher hefði vísvitandi skíðað utan brautarinnar.