Ingibjörg Kristín Pétursdóttir fæddist á Skagaströnd 1. september 1921. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 29. desember 2013.

Faðir Ingibjargar var Pétur Stefánsson frá Höfðahólum, f. 29.6. 1878, d. 28.6. 1962, sjómaður og verkamaður á Lækjarbakka á Skagaströnd. Móðir hennar var Marta Guðmundsdóttir frá Torfalæk, f. 22.1. 1885, d. 31.5. 1957. Systkini: Samfeðra: Sigurbjörg, f. 1906, d. 1993. Einar, f. 1908, d. 1908. Alsystkini: Guðmunda, f. 1914, d. 2001. Margrét, f. 1915, d. 2013. Jóhann, f. 1918, d. 1999. Elísabet, f. 1919, d. 2006. Ófeigur, f. 1928. Uppeldissystkini: Guðmundur f. 1902, d. 2002. Björn Leví, f. 1904, d. 1979. Jóhann Frímann, f. 1904, d. 1980. Jónas Bergmann, f. 1908, d. 2005. Ingimundur, f. 1912, d. 1969. Torfi, f. 1915, d. 2009. Sigrún Einarsdóttir, f. 1929.

Ingibjörg giftist 8. apríl 1944 Jósafat Sigvaldasyni frá Hrafnabjörgum í Svínadal, f. 21.10. 1912, d. 6.4. 1982. Þeirra börn eru: 1) Jón Ingi, f. 1944. Maki Alda Sigrún Sigurmarsdóttir, f. 1946. Börn: Guðrún Helga, maki Ólafur Unason, eiga þau tvö börn. Stefán Páll. 2) Sigvaldi Hrafn, f. 1948. Maki Guðfinna Jóna Eggertsdóttir, f. 1944. Börn: Þorkell. Edda Guðrún, maki Ásbjörn Þorvaldsson, eiga þau tvö börn. 3) Jónína Guðrún, f. 1950. Maki Bjarni Benedikt Arthursson, f. 1949. Börn: Ragnheiður Dagný, maki Páll Gauti Pálsson, eiga þau þrjú börn. Ingibjörg Marta, maki Jón Þór Ragnars, eiga þau tvö börn. Ásgeir Pétur, maki Eyrún Ellý Valsdóttir, eiga þau tvö börn. 4) Pétur, f. 1955. Maki Málfríður Gestsdóttir, f. 1953. Barn Ingibjörg Hrefna. Stjúpbörn Péturs: Heiðar Karlsson, hann á tvö börn. Guðrún Karlsdóttir, hún á þrjú börn. Örvar Karlsson, hann á eitt barn.

Ingibjörg ólst upp á Torfalæk hjá hjónunum Jóni Guðmundssyni, móðurbróður sínum, og Ingibjörgu Björnsdóttur konu hans. Hún stundaði nám við Kvennaskólann á Blönduósi veturinn 1939-40. Var ráðskona á Sjúkrahúsinu á Blönduósi 1947-48. Síðan heimavinnandi húsmóðir um skeið en starfaði lengst af við umönnun og fleira á Héraðshælinu á Blönduósi. Ingibjörg hafði yndi af alls kyns handavinnu og föndri, einnig hafði hún mikla ánægju af blómarækt og garðyrkju. Þau Jósafat bjuggu á Blönduósi mestallan sinn búskap.

Útför Ingibjargar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 9. janúar 2014, og hefst athöfnin kl. 13.

Ég kynntist tengdamóður minni fyrir rúmum 40 árum, þegar ég kom fyrst á heimili hennar og tengdapabba, Jósafats Sigvaldasonar eiginmanns hennar, og var mér alltaf tekið opnum örmum af þeim báðum.

Það einkenndi hana hvað hún hafði óskaplega gaman af því að taka á móti gestum, þá lék hún á als oddi á sinn hátt.

Það er sagt að þar sem er nóg hjartarúm þar er líka nóg húsrúm. Þetta átti sannarlega við um hana, því það kom fyrir að þegar við vorum öll mætt til hennar þá var jafnvel sofið á eldhúsgólfinu.

Fljótlega eftir að ég kom til hennar fyrst átti hún fimmtugsafmæli og var búin að bjóða systkinum sínum og fleira fólki í veislu heima hjá sér. Þá skellti hún mér í að skreyta tertur og sýnir það vel hvað hún treysti fólki alltaf vel, því ekki hafði hún hugmynd um hvort ég gæti innt þetta sómasamlega af hendi. „ Þú gerir þetta örugglega betur en ég,“ sagði hún bara.

Hún var að mínu mati alltaf mjög lítillát þegar henni var hrósað fyrir allar hannyrðirnar, föndrið og annað fínirí sem hún gerði. Það var ekki hennar stíll að hreykja sér. En það er gaman að fá að njóta verkanna hennar um ókomin ár.

Barnabörnin voru líka hennar líf og yndi og minnist ég þess að þau fóru yfirleitt öll með henni í Kaupfélagið að versla, því þau vildu bera pokana fyrir hana eins og þau sögðu. En mig grunar að þeim hafi ekki fundist leiðinlegt að fara með henni því hún keypti alltaf ís að eigin vali handa þeim eða eitthvað annað skemmtilegt.

Þrátt fyrir sína hæversku gat hún verið ákveðin, þegar svo bar undir. Því að þegar Jósafat féll frá var hún orðin sextug og dreif sig þá í að læra á bíl. „Nú, ég get ekki haft bílinn óhreyfðan inni í bílskúr,“ sagði hún. Hún keyrði að vísu bara innanbæjar á Blönduósi, sem var alveg nóg fyrir hana. Hún fór reyndar einu sinni í ökuferð til Skagastrandar með systur sína. Ef hún vildi fara eitthvað annað í einkabíl hafði hún Ellu vinkonu sína og skrapp með henni til Akureyrar.

Hún hafði líka yndi af blóma- og trjárækt og kom sér upp gróðurhúsi sem hún kallaði elliheimilið sitt. Þar ræktaði hún rósir af mikilli alúð, auk þess sem hún var með stóran garð fullan af allskonar plöntum. Í garðinum undi hún sér löngum stundum.

Þar sem lífið lagði á hana ýmsar byrðar, sem hún stóð af sér eins og hetja, held ég að hún hafi notið þess vel að geta látið ýmislegt eftir sér þau ár sem hún hafði getu til þess. Eftir að hún hætti að vinna var hún mjög virk í öllu sem boðið var upp á fyrir eldri (heldri) borgarana á Blönduósi og var hún mjög ötul að prófa allt sem boðið var upp á þar. Hún fór í ótal ferðir bæði innan lands og utan með eldri borgurum og naut þess vel.

Ég vil með þessum fátæklegu línum þakka fyrir að hafa fengið að kynnast henni og eiga með henni samleið í rúm 40 ár. Ég er sannfærð um að nú líður henni vel. Blessuð sé minning tengdamömmu.

Guðfinna Jóna

Eggertsdóttir.

Það fór ekki mikið fyrir henni Ingibjörgu Pétursdóttur, eða Immu eins og vinir og fjölskylda kölluðu hana jafnan. Samt sem áður eru sumir kaflar í lífsbók hennar afar athyglisverðir og ekki víst að samferðamenn hennar hafi gert sér grein fyrir hvaða verkefni hún tókst á við í upphafi lífsgöngunnar. Þegar Imma var aðeins hálfs annars árs gömul kom móðurbróðir hennar, Jón Guðmundsson bóndi á Torfalæk, að tali við Mörtu móður hennar sem bjó á Skagaströnd og falaðist eftir að fá yngstu dóttur hennar og Péturs til uppeldis á Torfalæk, en Jón langaði alltaf til að eignast dóttur. Varð það að samkomulagi að Jón fengi Immu til uppeldis og færi með hana að Torfalæk. Ólst hún þar upp til fullorðinsára. Voru samfundir Immu og foreldra hennar stopulir. Vegna þessa náði Imma ekki að kynnast systkinum sínum fyrr en á fullorðinsárum.

Imma naut ástríkis af hálfu fósturforeldra sinna og minntist hún þeirra með miklum hlýhug og virðingu allt fram á sinn síðasta dag. Við fráfall Ingibjargar á Torfalæk, þegar Imma var 19 ára, tók hún fyrst um sinn við húsmóðurstörfum á Torfalæk en fljótlega tók tengdadóttir hjónanna við húsmóðurhlutverki á bænum. Um svipað leyti kynnast Imma og Jósafat og ganga í hjónaband 1944. Hugðust þau setjast að á Skagaströnd og byrja að leggja fyrir fé til húsbyggingar. Tveimur árum síðar veiktist Jósafat af lömunarveiki og þurfti að senda hann til Reykjavíkur með sjúkrabíl. Neituðu sjúkraflutningamenn að færa hann í bílinn fyrr en hann hafði greitt fyrir flutninginn suður. Fór þar sparifé það sem ganga átti til húsbyggingar. Þegar Jósafat snéri aftur til Blönduóss hálfu ári síðar, þá með máttlausan hægri fót, leist forsvarsmönnum sveitarfélagsins ekki á framtíð ungu hjónanna og óttuðust að þau mundu lenda á framfæri sveitarfélagsins. Var þeim gerð grein fyrir að ekki væri ætlast til að þau byggju bæði í íbúðinni sem Imma bjó í.

Gerðu þeir kröfu um að þau væru flutt í sína heimasveit svo Blönduóshreppur þyrfti ekki að bera framfærslu þeirra. Þrátt fyrir afstöðu forsvarsmanna sveitarfélagsins settust þau að til frambúðar á Blönduósi og höfðu þau alla tíð nóg að starfa. Imma starfaði lengst af við Héraðshælið á Blönduósi þar til hún þurfti að hætta störfum sökum aldurs.

Þó að fyrstu búskaparár Immu og Jósafats hafi verið þeim hjónum afar mótdræg átti hún góð efri ár og síðustu árin naut hún návista við börn og barnabörn eftir að hún flutti á hjúkrunarheimilið Eir.

Nú þegar lífsgöngu tengdamóður minnar er lokið vil ég þakka henni fyrir mikinn hlýhug í minn garð og einnig fyrir allt það sem hún var börnum okkar Jónínu. Hún var sönn amma með stórum staf. Fátt var eins spennandi í æsku barnanna eins og að fá að fara í heimsókn til ömmu, einkum ef þau fengu að vera ein með henni. Þá virtist eins og giltu önnur mörk en giltu heima.

Bjarni Arthursson.

Amma Ingibjörg var róleg, hógvær og með eindæmum gestrisin. Litla húsið hennar á Blönduósi var viðkomustaður margra ferðalanga. Allir voru velkomnir og alltaf var til nóg af dýnum ef fólk vildi gista. Barnabörnin komu gjarnan í skólafríum og fengu að gista nokkrar nætur. Amma gerði vel við börnin með því að kaupa pítsu í Kaupfélaginu og bauð upp á ískalda mjólk með. Ef það var ekki mjólk þá var það Blanda í litlum grænum fernum. Heima hjá ömmu var nóg að gera. Börnin fengu að hjálpa til í garðinum, leika með kassabílinn sem afi hafði smíðað eða fótboltann og önnur leikföng sem amma hafði geymt frá sínum eigin börnum. Fyrir svefninn var undantekningarlaust boðið upp á kvöldkaffi, mjólk og kex fyrir svefninn.

Alls konar prjóna- og saumaskapur lék í höndunum á ömmu en alltaf talaði hún um allt sem hún gerði eins og þetta væri ósköp ómerkilegt. Þegar hún var ekki að sinna handavinnu var hún á hnjánum úti í garði að sinna gróðrinum sínum. Á veturna kom fyrir að það snjóaði það mikið að húsið fór nánast á kaf. Amma beið róleg inni og saumaði ef til vill út eða prjónaði vettlinga, þangað til einhver kom og mokaði snjóinn svo hún kæmist út. Þetta var ekkert til að æsa sig yfir.

Amma vildi hvergi annars staðar vera en á Blönduósi, jafnvel þó að öll börnin og barnabörnin væru fyrir sunnan. Þegar farið var að draga af henni ákvað hún að koma til höfuðborgarinnar og vera nálægt fjölskyldunni en nú loksins getur hún haldið aftur norður. Blessuð sé minning hennar.

Edda Guðrún Sigvaldadóttir.

Elskuleg fóstursystir föður míns, Ingibjörg Pétursdóttir, Imma mín, er látin. Ég á margar góðar minningar um Immu frá Torfalæk þar sem hún var alin upp hjá ömmu minni og afa, Ingibjörgu Björnsdóttur og Jóni Guðmundssyni, þar sem ég var í sumardvöl mörg ár og eftir lát ömmu minnar 1940 í umsjá Immu og Sigrúnar, annarrar uppeldissystur pabba og þeirra bræðra. Svaf í baðstofunni í rúmi með annarri hvorri þeirra til skiptis og man þegar Imma var sett til að koma mér í rúmið og tafðist vegna þessa við að komast á fund kærastans, hans Jósa. Það er mér minnisstætt þó ung væri. Síðar á ævinni heimsóknir til Immu og Jósafats á Blönduós, 80 ára afmæli Immu á Ósnum og heimsókn til hennar á Eir. Þó veik væri á Eir rifjaði hún upp atvik frá bernskudögum mínum frá Torfalæk sem var henni minnisstætt. Það snerti mig djúpt. Nú er hún búin að fá hvíldina og ég óska henni góðrar ferðar og góðrar heimkomu í sumarlandið með hjartans þökk fyrir allt sem hún var mér.

Það sem mér fannst alltaf einkenna Immu var æðruleysi. Fannst hún aldrei haggast þrátt fyrir ýmsa erfiðleika á ævinni eins og erfið veikindi Jósafats á sínum tíma, en þá dvöldu þau um stund hjá foreldrum mínum á Mánagötunni. Eftir því sem árin líða hef ég meira og meira dáðst að þessum eiginleika Immu.

Sigrún Einarsdóttir, uppeldissystir Immu og bræðranna á Torfalæk, minnist áranna þeirra saman, þakkar henni af alhug samfylgdina, öll góðu árin þeirra og óskar henni góðrar heimkomu. Sömuleiðis þakkar Ragnar, maður Sigrúnar, fyrir góðu stundirnar. Þau senda innilegar samúðarkveðjur til barna Immu og fjölskyldna þeirra.

Guðmundur bróðir minn og hans fjölskylda kveðja Immu með þakklæti fyrir samveruna. Innilegar samúðarkveðjur okkar allra til barna Immu og þeirra fjölskyldna.

Vertu kært kvödd, elsku Imma mín, og ég veit að ég tala fyrir hönd þeirra í Torfalækjarfjölskyldunni sem nutu gæsku þinnar og nærveru. Blessuð sé minning Immu minnar.

Ingibjörg Björnsdóttir.

Imma frænka, eins og hún var ávallt nefnd í mínu ungdæmi hér á Torfalæk, var tekin í fóstur í barnæsku af Ingibjörgu ömmu og Jóni afa, en hún var systurdóttir afa. Föðurbræður mínir töluðu ávallt um fóstursystur sína. Imma giftist Jósafat Sigvaldasyni og voru þau alltaf nefnd í sömu andránni, Imma og Jósi. Þau bjuggu lengst af í öðrum endanum í Pétursborg á Blönduósi, einu af elstu húsunum í gamla bænum, alveg niður við ósa Blöndu. Það var búið þröngt í Pétursborg og ekki mikið veraldlegt ríkidæmi hjá þeim Immu og Jósa, fremur en hjá svo mörgum fjölskyldum um miðja síðustu öld. Börn þeirra fjögur komust samt til mennta og hafa tekið virkan þátt í að efla og bæta þjóðfélag okkar eins og hugur þeirra stefndi til.

Jósi hafði fengið lömunarveiki og var ekki fær til allrar vinnu. Í gamla daga kom hann stundum til að mála á Torfalæk og í hans höndum sá ég fyrst málningarrúllu. Hann klippti líka stráka og karla og þá var oft komið í eldhúsið til Immu sem reiddi fram mjólk og köku að lokinni hársnyrtingu.

Þessi hægláta frænka var kona sem lítið fór fyrir en mikið munaði um. Hún var prúð og fáguð í framkomu, en líka föst fyrir og þrautseig, hélt fast á sínum hlut.

Eftir að börnin uxu úr grasi og Jósafat var fallinn frá tók Imma virkari þátt í ýmsum félagsstörfum, hún var tiltæk og virk þegar kallað var eftir. Það er hinn eðlilegi gangur lífsins að öldruð manneskja kveðji. Minningar um samvist og samskipti rifjast upp. Hún hafði þessa hljóðu og gefandi nálægð.

Við Ella ásamt Jóni bróður og Siggu þökkum langa samfylgd og góðan hug alla tíð og sendum fjölskyldunni hlýjar samúðarkveðjur.

Jóhannes Torfason.