Dansarar Danshópurinn Hello Earth íklæddur forvitnilegum búningum.
Dansarar Danshópurinn Hello Earth íklæddur forvitnilegum búningum.
Danskur danshópur, Hello Earth, er staddur á Egilsstöðum og mun dvelja þar í þrjár vikur. Hópurinn er þangað kominn á vegum Wilderness dance, alþjóðlegs samstarfsverkefnis sem Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs tekur þátt í.
Danskur danshópur, Hello Earth, er staddur á Egilsstöðum og mun dvelja þar í þrjár vikur. Hópurinn er þangað kominn á vegum Wilderness dance, alþjóðlegs samstarfsverkefnis sem Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs tekur þátt í. Hann mun vinna að list sinni í Sláturhúsinu, halda vinnustofur og standa fyrir fjölmennum dansviðburði.