[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Leikstjórinn Marteinn Þórsson fer óvenjulegar leiðir við gerð nýjustu myndar sinnar, Á morgun verðum við eitt . Ekkert handrit er að myndinni og, það sem meira er, engir peningar til að framleiða hana.

Gunnar Dofri Ólafsson

gunnardofri@mbl.is

Leikstjórinn Marteinn Þórsson fer óvenjulegar leiðir við gerð nýjustu myndar sinnar, Á morgun verðum við eitt . Ekkert handrit er að myndinni og, það sem meira er, engir peningar til að framleiða hana. Myndina vinnur hann í frítíma, en Marteinn hefur áður gert myndirnar Rokland og XL .

„Mig langaði að gera þetta,“ segir Marteinn þegar hann er spurður að því hvað hafi fengið hann til að gera myndina með þessum hætti. „Ég veit ekki hvernig ég get útskýrt það betur. Ég nenni allavega ekki að bíða eftir þessum hefðbundnu leiðum til að fjármagna myndina, miklu betra er að búa sér til eitthvað að gera,“ segir Marteinn.

Hann segir nútímatækni hjálpa kvikmyndagerðarmönnum mikið við að gera myndir með litlum tilkostnaði. „Ljósnæmar myndavélar sem geta tekið í kvikmyndaformi breyta þessu. Ef maður kann að taka sjálfur getur maður unnið þetta svona. Svo setur maður sér einhver ákveðin mörk. Þú vinnur svona mynd ekki á hefðbundinn hátt. Þetta getur að mörgu leyti frelsað þig undan þeim takmörkunum sem venjuleg kvikmyndagerð setur þér.“

Marteinn segir um að gera að nýta þann aðgang sem íslenskir kvikmyndagerðarmenn hafa að leikurum. Kvikmyndageirann segir hann færast nær og nær því að vera iðnaður, þar sem tæknilega hliðin fái meiri athygli en leikarar og leikstjórar. „Fólk þarf að fá að gera eitthvað. Iðnaðarhliðin á kvikmyndagerðarmönnum fær mikið að gera, til dæmis í Hollywood. En leikarar og leikstjórar og handritshöfundar fá minna að gera.“

Hlúa að skapandi hliðinni

„Það þarf að hlúa að skapandi hlið bransans. Kanadamenn lentu í því að þeirra skapandi iðnaður hvarf eiginlega, því skapandi hluti hans var allur farinn til Los Angeles,“ segir Marteinn.

Myndin sem hann vinnur nú að fjallar um sambönd, hvernig fólk hittist og verður ástfangið og löngunina til að vera með annarri manneskju. „Grunnhugmyndin er þessi klassíska, strákur hittir stelpu, þau byrja saman, þau hætta saman en byrja svo aftur saman. Það er grunnþráðurinn. Svo vinnum við bara út frá því og sjáum hvert sagan tekur okkur. Sagan er í rauninni mjög einföld og eitthvað sem allir geta tengt við,“ segir Martinn.

Hann gerir ráð fyrir að leikararnir muni eiga stóran þátt í að móta hvaða stefnu myndin tekur. „Við fylgjum því sem kemur sterkast út. Það er alltaf einhver „editering“ í gangi, nema hvað hún er ekki í tölvu eða ritvinnsluforriti, heldur bara með kvikmyndatökuvél, ljósi og klippingu.“

Marteinn segir að myndin muni sennilega taka eitt til þrjú ár í tökum, ekki ósvipað því sem tekur að skrifa handrit að mynd, taka, klippa og vinna. „Þetta er bara aðeins öðruvísi vinnsla. Þetta er í sjálfu sér ekkert nýtt, það eru leikstjórar sem hafa unnið svona, en þá yfir styttri tíma. David Lynch gerði til að mynda Inland Empire án þess að hafa handrit.“

„Handrit eru heimskuleg“

Ungverski leikstjórinn Béla Tarr sagði við mig þegar hann var á kvikmyndahátíð hérna í Reykjavík: „Kvikmyndahandrit eru heimskuleg, ég er að búa til kvikmynd (e. Screenplays are stupid, I'm making a movie).“ Hann vinnur allt handritslaust. Það á að skrifa kvikmyndir með tökuvél, ekki penna,“ segir Marteinn og hlær. „Þetta er mikil áskorun fyrir mig því ég er svolítið íhaldssamur sjálfur, ég vil handrit og hafa hlutina í föstum skorðum, plana tökurnar og hafa æfingar. Þarna stekk ég hins vegar í djúpu laugina. Maður þarf að gera það öðru hverju, annars staðnar maður bara.“

Marteinn telur íslenskan kvikmyndaiðnað ekki vera í vanda. „Það er margt spennandi að gerast. Ég myndi ekki hafa áhyggjur af því, en kannski ættum við að leyfa okkur að gera meira rými fyrir kvikmyndagerðarmenn. Þá kemur kannski íslensk nýbylgja á borð við t.d. dönsku dogma-myndirnar. Svona bylgja hefur lengi verið í gangi í íslenskri tónlist og bókmenntum. Það væri gaman að sjá þetta líka í kvikmyndum.“ Marteinn grípur hverja lausa stund til að vinna að kvikmyndinni, en hann starfar sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi hjá SÁÁ. „Maður grípur vaktafríin og helgarnar.“

Losnar ekki við Ólaf Darra

Marteinn tekur sjálfur upp hljóð og mynd, en fær aðstoð við hljóðvinnslu. „Allir eru þarna upp á prósentur. Ef það koma inn einhverjir peningar í eftirvinnslunni fær fólk borgað, en ef ekki, þá fær það ekki borgað. Leikararnir hafa samt ekki eytt svo miklum tíma í þetta, þannig að þú tapar í sjálfu sér engum peningum en færð heilmikla reynslu.“ Meðal leikara í myndinni er Ólafur Darri Ólafsson. „Ég losna ekkert við hann,“ segir Marteinn og hlær, en Ólafur Darri lék bæði í Roklandi og XL . „Hann er minn DiCaprio. Ég er heldur ekki búinn að þjálfa hann nóg, hann á smá eftir þangað til hann verður almennilegur,“ segir Marteinn og hlær enn meira.