Skarphéðinn Orri Björnsson sækist eftir þriðja sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna komandi bæjarstjórnarkosninga í Hafnarfirði.

Skarphéðinn Orri Björnsson sækist eftir þriðja sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna komandi bæjarstjórnarkosninga í Hafnarfirði.

Skarphéðinn Orri hefur lengst af starfað í lyfja- og líftæknigeiranum bæði hérlendis og erlendis, nú síðast sem framkvæmdastjóri líftæknifyrirtækisins Algalíf, sem vinnur að byggingu stórrar líftækniverksmiðju á Ásbrú.

„Víðtæk reynsla af atvinnu- og stjórnmálum er notadrjúgt veganesti nú þegar rjúfa þarf kyrrstöðuna í Hafnarfirði,“ segir m.a. í tilkynningu frá Skarphéðni.