Tómas Ingason hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþróunarsviðs WOW air. Tómas starfaði sem stjórnunarráðgjafi hjá Bain & Company í Kaupmannahöfn á árunum 2011 til 2013. Áður leiddi Tómas tekjustýringu og verðlagningu hjá Icelandair.

Tómas hefur MBA-gráðu frá MIT Sloan School of Management í Boston en auk þess hefur hann lokið MS-gráðu í verkfræði frá MIT með áherslu á flugrekstur og aðfangakeðjur. Tómas er með BS-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands, segir í tilkynningu.