Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur skipað Drífu Snædal í stjórn Íbúðalánasjóðs í stað Stefáns Ólafssonar prófessors. Hún er framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands og fyrrverandi framkvæmdastýra VG.

Drífa lauk námi sem tækniteiknari frá Iðnskólanum í Reykjavík 1998, viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 2003 og meistaraprófi í vinnurétti frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð 2012, segir í tilkynningu.