Tvær höfuðsyndir. S-AV Norður &spade;KD42 &heart;108 ⋄109 &klubs;KG763 Vestur Austur &spade;3 &spade;1065 &heart;Á6532 &heart;KG97 ⋄K5 ⋄D8642 &klubs;98542 &klubs;Á Suður &spade;ÁG987 &heart;D4 ⋄ÁG73 &klubs;D10 Suður spilar 4&spade;.

Tvær höfuðsyndir. S-AV

Norður
KD42
108
109
KG763

Vestur Austur
3 1065
Á6532 KG97
K5 D8642
98542 Á

Suður
ÁG987
D4
ÁG73
D10

Suður spilar 4.

Við skildum lesandann eftir í lausu lofti í gær með syndum hlaðið spil úr pólska meistaramótinu, sem er áberandi á BBO þessa dagana. Nú reynum við lendingu undir andlegri stjórn Moose flugkappa, þjálfara Dallas-Ásanna.

Rifjum upp: Vestur spilar út með 8 gegn 4 (annað hæsta frá lélegum lit). Suður lætur D undir ásinn og austur skiptir yfir í tígul í öðrum slag. Suður drepur með ás, tekur TVISVAR tromp, spilar litlu laufi úr borði að tíunni og austur hendir tígli. Tíu slagir.

Austri er vorkunn að spila tígli í öðrum slag, frekar en hjarta. Köllum það hitting. En sagnhafi gerði reginskyssu að taka ekki þriðja trompið. Hann gat gert það, yfirdrepið síðan 10 með kóng og hent tveimur hjörtum í G og 7. Fríað þannig 6 og tryggt tíu slagi. Austur er auðvitað bersyndugur að trompa ekki laufið.