365 Stöð 2 sport hækkar í verði um 14,5% en verðskrá á pakkatilboðum er óbreytt.
365 Stöð 2 sport hækkar í verði um 14,5% en verðskrá á pakkatilboðum er óbreytt.
Áskrift að Stöð 2 sport hefur hækkað um 14,5% eða úr 6.900 krónum í 7.900 krónur. Aðrir þættir verðskrár sjónvarpsstöðva hjá 365 miðlum hækkuðu ekki um áramótin.

Áskrift að Stöð 2 sport hefur hækkað um 14,5% eða úr 6.900 krónum í 7.900 krónur. Aðrir þættir verðskrár sjónvarpsstöðva hjá 365 miðlum hækkuðu ekki um áramótin. Ari Edwald forstjóri 365 miðla leggur áherslu á að aðeins sé um verðhækkun að ræða hjá þessari einu stöð. Áfram verði sama verð á svokölluðum „pökkum“ þar sem hægt er að fá fleiri en eina stöð á lægra heildarverði en ef um væri að ræða áskrift á hverri stöð fyrir sig.

Sigrún L. Sigurjónsdóttir hjá sölu og áskriftarsviði bendir jafnframt á að stöðin sé að bæta við sig miklu af efni og nefnir í því samhengi Wimbledon-mótið í tennis, Vetrarólympíuleikana í Sochi, Motorcross, NFL og Demantsmótaröðina í frjálsum íþróttum.