Kristján Johannessen khj@mbl.is Fólkið sem bjargað var út úr brennandi íbúðarhúsi í Keflavík í fyrrakvöld slapp án teljandi meiðsla og var útskrifað af sjúkrahúsi að lokinni skoðun.

Kristján Johannessen

khj@mbl.is

Fólkið sem bjargað var út úr brennandi íbúðarhúsi í Keflavík í fyrrakvöld slapp án teljandi meiðsla og var útskrifað af sjúkrahúsi að lokinni skoðun.

„Við fáum tilkynningu um mikinn reyk við Mávabraut rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi [fyrrakvöld] og förum á staðinn. Þegar ég kem þar að að framan mætir mér mikill svartur reykur út um útidyrnar. Ég kalla inn til þess að athuga hvort einhver sé inni í íbúðinni en fæ engin svör,“ segir Sigurður Skarphéðinsson, varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, en hann varð einn af þeim fyrstu til þess að mæta á vettvang þegar eldur kom upp í húsinu.

Sótsvart í framan

Aðspurður kveðst Sigurður því næst hafa látið íbúa á efri hæð hússins vita að eldur væri laus á jarðhæðinni en tvennt var í íbúðinni þegar eldurinn kom upp, hjón á miðjum aldri, og voru þau að sögn Sigurðar inni í svefnherbergi.

Um svipað leyti og slökkviliðsmenn voru að undirbúa reykköfun braut nágranni rúðu í svefnherbergisglugganum og hóf að aðstoða íbúa við að komast út. Lögreglumenn komu svo til aðstoðar skömmu síðar.

Að sögn Sigurðar var fólkið sótsvart í framan og flutt á sjúkrahús til skoðunar. Það mun þó hafa sloppið án teljandi meiðsla og var útskrifað af sjúkrahúsi að lokinni skoðun.

Gríðarlegur hiti

Spurður hvort mikill eldur hafi verið í húsinu kveður Sigurður nei við: „Það var reyndar ekki mikill eldur en eldur hafði greinilega logað lengi því íbúðin var mjög illa farin.“ Bendir Sigurður á að svefnherbergisdyrnar hafi verið lokaðar þegar eldurinn kom upp og kann það að hafa átt sinn þátt í að ekki fór verr þar sem reykur átti þá ekki jafngreiða leið inn í herbergið til fólksins.

Þótt eldur hafi ekki verið mikill segir Sigurður ljóst að mjög mikill hiti hafi verið inni í íbúðinni og höfðu rúður t.a.m. sprungið að innan.

Verksummerki benda til að eldur hafi kviknað í sófasetti sem staðsett var í stofu íbúðarinnar. Nánari upplýsingar um upptök eldsins liggja hins vegar ekki fyrir að svo stöddu en lögreglan hóf rannsókn strax að loknu slökkvistarfi.