Atvinna Fiskur og fólki í vinnslu fjölgar.
Atvinna Fiskur og fólki í vinnslu fjölgar. — Morgunblaðið/Eggert
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Reikna má með að allt að 200 ný störf verði til í landvinnslu á fiski á þessu ári, því sjávarútvegsfyrirtækin auka nú starfsemi í húsum sínum en draga úr vinnslu og frystingu í skipum á hafi úti.

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Reikna má með að allt að 200 ný störf verði til í landvinnslu á fiski á þessu ári, því sjávarútvegsfyrirtækin auka nú starfsemi í húsum sínum en draga úr vinnslu og frystingu í skipum á hafi úti. Verð á sjófrystum afurðum hefur lækkað um 14% á tveimur árum, auk þess sem kostnaður hefur aukist.

Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva, segir að verði þorskkvóti aukinn á næsta fiskveiðiári, eins og margt bendir til, fjölgi störfum í fiskvinnslu enn meira.

Hjá HB-Granda hefur landvinnslufólki fjölgað um 50 síðasta árið. Fyrirtækið hefur selt einn frystitogara og er að breyta öðrum í ísfiskskip. Svipað er uppi á teningnum hjá Þorbirni í Grindavík. Á móti þessu kemur að sjómönnum fækkar. „Við erum að endurskipuleggja reksturinn í samræmi við breyttar aðstæður, það er fyrst og fremst vegna ofurskattlagningar og lækkunar á verði afurða,“ segir Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar. 12