Númeraverk „Það sem ég teikna, formið, kemur alltaf úr listanum yfir nýleg númer í farsímanum,“ segir Tumi og lyftir hér upp einu verkanna.
Númeraverk „Það sem ég teikna, formið, kemur alltaf úr listanum yfir nýleg númer í farsímanum,“ segir Tumi og lyftir hér upp einu verkanna. — Morgunblaðið/Einar Falur
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Nýleg númer er heiti sýningarinnar sem Tumi Magnússon myndlistarmaður opnar í Hverfisgalleríi neðst við Hverfisgötuna klukkan 17 í dag, fimmtudag.

Einar Falur Ingólfsson

efi@mbl.is

Nýleg númer er heiti sýningarinnar sem Tumi Magnússon myndlistarmaður opnar í Hverfisgalleríi neðst við Hverfisgötuna klukkan 17 í dag, fimmtudag. Á sýningunni gefur að líta röð verka í samnefndri seríu og auk þess myndbandsverk á fimm skjám sem hann kallar Telefonitis .

„Þessi röð heitir Nýleg númer, eða Recent Numbers þegar ég setti nánast sömu sýningu upp í Frankfurt í vor,“ segir hann. „Þetta eru teikningar af símanúmerum á fundið efni. Símanúmerið teiknast á sama hátt og fingurinn færist yfir talnaborðið á símanum,“ segir hann og teiknar út í loftið eins og hann sé að slá númer á stóran síma.

„Ég byrjaði á að gera verk í þessa átt fyrir mörgum árum en þau urðu ekki að seríu fyrr en núna.“

Samspil hugmyndar og efnis

Verkin eru, eins og hann segir, á fundið efni. Til að mynda á tvöfalt gler, masónítplötur, skáphurð, límtrésplötu og plexígler. „Oftast ákveður efnið hvernig tölurnar enda á fletinum. Þetta er samspil hugmyndar og efnis.

Flest verkanna eru máluð, þarna er eitt gert með límbandi og í þetta þarna er skorið djúpt með grafíkáhaldi og fyllt í skurðinn með málningu. Þetta er málverk en málningin er komin ofan í flötinn.“

– Er þetta núningur málverks og nytjahlutar?

„Notaðs nytjahlutar,“ segir Tumi. „Ramminn sem ég nota við gerð verkanna er nokkuð stífur en þó sveigjanlegur. Ég get leikið mér nokkuð með hann.

Þetta eru teikningar, eða málverk; mér er sama hvað þetta er kallað.

En það sem ég teikna, formið, kemur alltaf úr listanum yfir nýleg númer í farsímanum. Og titlarnir á verkunum eru númerin sjálf, án landnúmers. Það er hugsanlegt að fólk geti hringt í þessi númer en þau eru frá nokkrum löndum.“

Hann bendir svo á eitt einfaldasta verkið, þar sem teikningin byggist aðeins á láréttum og lóðréttum línum. „Þetta virkar einfalt en er samt langt númer, í Nepal,“ segir hann og les titilinn: 9808789993!

Allt saman myndlist

Á dögunum sýndi Tumi í Listasafni ASÍ ásamt dönskum kollega sínum, þar á meðal myndbandsverk þar sem hann hafði fellt saman myndir þar sem sjá mátti hellt upp á kaffi í mörgum könnum; þær voru settar á helluna á sama tíma og lauk uppáhellingunni einnig samtímis, þar sem ýmist var hægt eða hraðað á tímanum.

„Þetta er annað verk í sömu röð. Ég fékk leyfi til að taka upp þegar fólk svaraði í símann, við sjáum og heyrum samtalið og því lýkur þegar lagt er á. Lengsta símtalið var um 14 mínútur og það stysta innan við mínúta, ég stytti þau eða lengi og nú eru öll samtölin orðin fimm mínútur.

Þetta er eins konar umbreyting á tíma og hefur með upplifun okkar á tíma að gera við hversdagslega iðju. Tíminn líður mishratt, eins og við þekkjum, lífið gengur mishratt eða -hægt fyrir sig. En með þessu reyni ég að setja þá pælingu fram á mjög hversdagslegan hátt.“

Tumi var prófessor í myndlist við Listaháskóla Íslands um skeið en tók svo við kennarastöðu við Listaakademíið í Kaupmannahöfn, sem hann gegndi til ársins 2011.

„Ég var þar með deild sem var upphaflega málaradeild en ég opnaði hana upp og fékk alls konar listamenn í heimsókn, allar tegundir af list. Eins og sést á þessari sýningu finnst mér mjög mikilvægt að maður líti ekki á hverja aðferð sem heilaga, heldur sé þetta allt saman myndlist. Mér finnst mjög gefandi að vinna í fleiri en einn miðil, þeir hafa áhrif hver á annan og geta opnað fyrir fleiri hugmyndir en ef maður einblínir alltaf á sama miðilinn. Vídeó, hljóð, teikning og ljósmynd; þetta blandast allt saman hjá mér.“