Söngvarinn Birgir Haraldsson syngur.
Söngvarinn Birgir Haraldsson syngur. — Morgunblaðið/Ómar
Hljómsveitin Gullfoss mun í kvöld heiðra hljómsveitina Creedence Cleawater Revival með tónleikum á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi sem hefjast upp úr miðnætti. Leikin verða helstu verk sveitarinnar og leiðtoga hennar, John Fogerty.

„Fáir hafa gert tónlist CCR betri skil en forsöngvari sveitarinnar, Birgir Haraldsson, kenndur við Gildruna og Gullfoss sem hefur löngum verið kallaður hinn íslenski Fogerty,“ segir í tilkynningu. Samstarfsmaður Birgis til margra ára, gítarleikarinn Sigurgeir Sigmundsson, kemur fram með honum á tónleikunum en Birgir og Sigurgeir voru báðir meðlimir CCR-Reykjavík og Gildrumezz sem hljóðrituðu tvær plötur með efni Creedence Clearwater Revival á seinnihluta síðustu aldar. Ingimundur Benjamín Óskarsson, Sigfús Óttarsson og Snorri Snorrason úr Gullfossi leika einnig, allir meðlimir Gullfoss. Fólk sem tilheyrir ´'68-kynslóðinni er sérstaklega hvatt til að mæta.