Syndir og dáðir. S-Allir
Norður | |
♠Á983 | |
♥K32 | |
♦G5 | |
♣G1096 |
Vestur | Austur |
♠DG104 | ♠K5 |
♥96 | ♥DG104 |
♦10964 | ♦D732 |
♣732 | ♣D54 |
Suður | |
♠762 | |
♥Á875 | |
♦ÁK8 | |
♣ÁK8 |
Suður spilar 3G.
Vanhugsað úrspil er ein af höfuðsyndum Moose. Sambærileg dáð á hinum kantinum ætti þá að vera djúphugsað úrspil. Áhorfendur á Bridgebase fengu sýnishorn af hvoru tveggja í þessu spili úr pólska meistaramótinu.
Sagnir voru samhljóða í báðum sölum: Standard-lauf í suður, svar á 1♠, 2G hjá opnara (18-19) og hækkun í þrjú. Útspil: tígultía – gosi og drottning. Ertu syndaselur eða dáðadrengur?
Á öðru borðinu dúkkaði sagnhafi ♦D, fékk næsta slag á ♦Á, spilaði þá hjarta á kóng og hjarta í bláinn. Hugmyndin virðist hafa verið sú að treysta á 3-3 legu í hjarta og ♣D rétta. Hið síðarnefnda gekk eftir, en þrettánda laufið í borði brann inni vegna innkomuleysis. Einn niður.
Hinn sagnhafinn spilaði mun betur: Drap strax á ♦Á, spilaði SPAÐA á ásinn og svínaði í laufi. Þar með voru níu slagir mættir í legunni, en jafnvel með ♣D í vestur var enn von í jafnri hjartalegu.