S.L.Á.T.U.R. fagnar nýju ári með sérstökum nýárstónleikum í Mengi að Óðinsgötu 2 í kvöld kl. 21.

S.L.Á.T.U.R. fagnar nýju ári með sérstökum nýárstónleikum í Mengi að Óðinsgötu 2 í kvöld kl. 21. Þar verður flutt ný tónlist fyrir klarinettur sem hafa verið undirbúnar sérstaklega, breyttar og endurhannaðar til að kalla fram nýjan hljóðblæ, nýjar stillingar og framlengja möguleika hljóðfærisins

„Á nýárstónleikunum munu tónskáld S.L.Á.T.U.R. vinna með þann efnivið sem klarinettan er og umbreyta eða umbylta gerð hljóðfærisins og virkni. Meðal annars verður notast við nýjar þrívíddarprentaðar baulur sem eru í þróun hjá Hljóðrannsóknarstofu LornaLab,“ segir í tilkynningu.