Margrómuð Stefán Hallur Stefánsson, Birna Hafstein og Árni Pétur Guðjónsson í hlutverkum sínum í uppfærslu Lab Loka.
Margrómuð Stefán Hallur Stefánsson, Birna Hafstein og Árni Pétur Guðjónsson í hlutverkum sínum í uppfærslu Lab Loka.
Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að bæta við tveimur aukasýningum á Stóru börnunum eftir Lilju Sigurðardóttur í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar sem Lab Loki setti upp. Sýningarnar verða í Tjarnarbíói í kvöld og annað kvöld kl.

Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að bæta við tveimur aukasýningum á Stóru börnunum eftir Lilju Sigurðardóttur í leikstjórn Rúnars Guðbrandssonar sem Lab Loki setti upp. Sýningarnar verða í Tjarnarbíói í kvöld og annað kvöld kl. 20 bæði kvöld.

Stóru börnin fékk mikið lof áhorfenda og gagnrýnenda. Símon Birgisson í Djöflaeyjunni valdi hana sýningu haustsins. Jón Viðar Jónsson, gagnrýnandi Fréttablaðsins, gaf henni fjórar stjörnur í Fréttablaðinu , og að hans mati var Rúnar Guðbrandsson, leikstjóri sýningarinnar, leikstjóri ársins. Þá valdi Sigurður Valgeirsson, gagnrýnandi Morgunblaðsins , hana sem eina af fimm bestu sýningum ársins,“ segir í tilkynningu frá Tjarnarbíói.