Vinsælt Dýrin í Studio Matryoshka eru afar vinsæl í leikfangadeild síðunnar.
Vinsælt Dýrin í Studio Matryoshka eru afar vinsæl í leikfangadeild síðunnar.
Fólk leitast gjarnan við að kanna uppruna þeirra vara sem það kaupir. Ekki er alltaf hlaupið að því en sem betur fer leitast margir þeirra sem flytja inn fatnað og matvöru við að rekja hvaðan varan kemur. Á vefnum www.petit.

Fólk leitast gjarnan við að kanna uppruna þeirra vara sem það kaupir. Ekki er alltaf hlaupið að því en sem betur fer leitast margir þeirra sem flytja inn fatnað og matvöru við að rekja hvaðan varan kemur.

Á vefnum www.petit.is má kaupa ýmsar vörur fyrir börn og mæður þar sem stór hluti úrvalsins er lífrænt gerður og framleiddur í sátt við náttúruna. Vefverslunin er íslensk og stofnuð af Linneu Ahle. Síðan er einföld og skilvirk. Það er auðvelt að skoða vörurnar auk þess sem bera má vörur saman á vefsíðunni.

Vörurnar eru hannaðar í Skandinavíu og á vefnum má finna spariföt, þægileg föt og töff föt. Auk þess er þar að finna sérvalin leikföng, barnahúsgögn, rúmföt og brjóstagjafarpúða, taupoka, veggspjöld og óróa.