Frans páfi hyggst útnefna 19 nýja kardínála nk. sunnudag og hefur hann hvatt þá til að forðast „veraldarhyggju og veislugleði“ af því tilefni. Páfi hefur oft varað klerka við of miklum metnaði, þeir eigi að temja sér auðmýkt.

Frans páfi hyggst útnefna 19 nýja kardínála nk. sunnudag og hefur hann hvatt þá til að forðast „veraldarhyggju og veislugleði“ af því tilefni.

Páfi hefur oft varað klerka við of miklum metnaði, þeir eigi að temja sér auðmýkt. „Staða kardínála er ekki stöðuhækkun eða veiting heiðursmerkis,“ segir Frans. „Það er einfaldlega þjónusta sem krefst aukinnar víðsýni og meiri hjartahlýju.“ kjon@mbl.is