Dans Salsadansinn hefur rutt sér til rúms hér á landi og er gríðarvinsæll.
Dans Salsadansinn hefur rutt sér til rúms hér á landi og er gríðarvinsæll.
Í næstu viku verður opið hús hjá SalsaIceland, dansskóla og félagi áhugafólks um salsadans. Þá verður boðið upp á ókeypis prufutíma fyrir byrjendur í salsa alla daga vikunnar auk þess sem haldið verður dansiball á föstudagskvöldinu.

Í næstu viku verður opið hús hjá SalsaIceland, dansskóla og félagi áhugafólks um salsadans.

Þá verður boðið upp á ókeypis prufutíma fyrir byrjendur í salsa alla daga vikunnar auk þess sem haldið verður dansiball á föstudagskvöldinu.

Öll dagskrá opins húss er ókeypis og ekki þarf að skrá sig fyrirfram né að koma með félaga. Tímarnir fara allir fram í húsnæði SalsaIceland á Grensásvegi 12a.

Samkvæmt síðunni salsaiceland.is er salsa einfaldur dans sem aðgengilegur er öllum. Í dansinum má fá góða brennslu í líflegu umhverfi undir ljúfum tónum suðuramerískrar tónlistar. Flestir nemendur SalsaIceland eru fólk sem ekki hefur annan dansgrunn áður en það hefur salsadansinn. SalsaIceland býður nemendum sínum vönduð námskeið í húsakynnum sínum auk þess að standa fyrir ókeypis vikulegum salsakvöldum á Thorvaldsen, og æfingatækifærum. Skemmtileg síða um áhugavert starf og sport.