Árni Samúelsson
Árni Samúelsson
Árni Samúelsson, eigandi kvikmyndahúsakeðju Sambíóa og kvikmyndadreifingar fyrirtækisins Samfilm, hefur verið skipaður í stjórn nýs félags sem til verður eftir samruna kvikmyndahúsafyrirtækjanna Cineworld Group og Cinema City International.

Árni Samúelsson, eigandi kvikmyndahúsakeðju Sambíóa og kvikmyndadreifingar fyrirtækisins Samfilm, hefur verið skipaður í stjórn nýs félags sem til verður eftir samruna kvikmyndahúsafyrirtækjanna Cineworld Group og Cinema City International. Samruninn tekur gildi í byrjun mars 2014 og nemur virði hans um 96,3 milljarða íslenskra króna. Cinema City er leiðandi félag á kvikmyndahúsamarkaðnum í Evrópu og rekur kvikmyndahús í Ungverjalandi, Póllandi, Tékklandi, Búlgaríu, Rúmeníu, Slóvakíu og Ísrael. Cineworld Group rekur kvikmyndahús undir nöfnunum Cineworld og Picturehouse og er markaðsleiðandi kvikmyndahúsakeðja í Bretlandi, Írlandi og rekur einnig kvikmyndahús í Skotlandi. Með samrunanum verður til önnur stærsta kvikmyndahúsakeðja í Evrópu, með 1.852 sýningarsali í 10 löndum, en um 250 milljón manns búa á markaðssvæðum félagsins. sgs@mbl.is