Auk frumsýningar á LandCruiser 150 kynnti Toyota Gæðalán, nýjan valkost í bílalánum þar sem vaxtalaust lán býðst fyrir 40% af verði bílsins.
Auk frumsýningar á LandCruiser 150 kynnti Toyota Gæðalán, nýjan valkost í bílalánum þar sem vaxtalaust lán býðst fyrir 40% af verði bílsins.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Fyrsta bílasýning Toyota á nýju ári var síðastliðinn laugardag, 11. janúar frá kl. 12-16. Nokkur ný módel voru kynnt fyrir gestum en miðpunktur sýningarinnar var þó nýr Land Cruiser 150, sem kemur nú með áberandi útlitsbreytingum og ýmsum öðrum...

Fyrsta bílasýning Toyota á nýju ári var síðastliðinn laugardag, 11. janúar frá kl. 12-16.

Nokkur ný módel voru kynnt fyrir gestum en miðpunktur sýningarinnar var þó nýr Land Cruiser 150, sem kemur nú með áberandi útlitsbreytingum og ýmsum öðrum nýjungum.

Þá var Toyota Avensis Terra einnig kynntur á sérstöku tilboðsverði á sýningunni og verður það fáanlegt í takmarkaðan tíma í kjölfar sýningarinnar.

Toyota kynnir Gæðalán

Þá kynnti Toyota við sama tækifæri nýja bílalánamöguleika, svokölluð Gæðalán Toyota, í samstarfi við Ergo þar sem boðin eru vaxtalaus lán fyrir 40% af verði bílsins til allt að þriggja ára. Meðfylgjandi myndir eru frá sýningunni í Kauptúni en einnig var efnt til sýninga á sama tíma hjá öllum viðurkenndum söluaðilum Toyota, í Reykjanesbæ, á Selfossi og á Akureyri.

jonagnar@mbl.is