Enskir fjölmiðlar greindu frá því í gærkvöld að Chelsea hafi samþykkt 37 milljón punda tilboð frá Manchester United í spænska miðjumanninn Juan Mata.
Enskir fjölmiðlar greindu frá því í gærkvöld að Chelsea hafi samþykkt 37 milljón punda tilboð frá Manchester United í spænska miðjumanninn Juan Mata. Sjálfur er leikmaðurinn búinn að ná samkomulagi við United um persónulegan samning og er reiknað með því að Spánverjinn snjalli gangist undir læknisskoðun í dag og skrifi svo undir samninginn að henni lokinni.