Roger Federer
Roger Federer
Svisslendingurinn Roger Federer vann Skotann Andy Murray örugglega, 6:3, 6:4, 6:7 og 6:3, í átta manna úrslitum opna ástralska mótsins í tennis í gær og mætir Rafael Nadal í undanúrslitum.

Svisslendingurinn Roger Federer vann Skotann Andy Murray örugglega, 6:3, 6:4, 6:7 og 6:3, í átta manna úrslitum opna ástralska mótsins í tennis í gær og mætir Rafael Nadal í undanúrslitum.

Murray, sem vann mótið í fyrra, hafði ekki roð við Svisslendingnum í dag en Federer sýndi allar sínar bestu hliðar og vann tiltölulega auðveldan sigur. Hann hefur unnið mótið fjórum sinnum, síðast árið 2010.

Í hinum undanúrslitaleiknum mætir Stanislas Wawrinka Tékkanum Tomas Berdych en Wawrinka gerði sér lítið fyrir og lagði Novak Djokovic í gær í átta manna úrslitum. Í kvennaflokki mætast Agnieszka Radwanska og Dominiku Cibulkova annars vegar og Li Na og Genie Bouchard hinsvegar. sport@mbl.is