Tiger Woods
Tiger Woods
Tiger Woods, efsti kylfingur heimslistans, þykir langsigurstranglegastur á Farmers Insurance-mótinu sem hefst í dag en það er hluti af PGA-mótaröðinni. Þetta er fyrsta PGA-mót ársins hjá Tiger sem vann fimm slík í fyrra.

Farmers Insurance-mótið fer fram á Torrey Pines-vellinum í Kaliforníu en þar líður Tiger afskaplega vel. Hann hefur unnið þetta mót sjö sinnum og einu sinni opna bandaríska þegar það fór fram á sama velli. Þess vegna þykir hann sigurstranglegastur en eins og vanalega er mikið fjölmiðlafár í kringum mótið fyrst Tiger er mættur. „Tiger-sirkusinn“ kalla þetta sumir bandarískir golfpennar.

Phil Mickelson er einnig á meðal keppenda en hann hefur unnið mótið þrívegis og er líklegur til að veita Tiger harða samkeppni. Það sama má segja um Jordan Spieth, Nick Watney, Ricky Fowler and Bill Haas sem allir eru mættir til leiks á Torrey Pines. tomas@mbl.is