Baldur Arnarson baldura@mbl.is ,,Við endurtökum nú það sem við gerðum fyrir tveimur árum og bjóðum háskólastúdentum iPad-tölvur með áskrift að Morgunblaðinu fyrir 2.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
,,Við endurtökum nú það sem við gerðum fyrir tveimur árum og bjóðum háskólastúdentum iPad-tölvur með áskrift að Morgunblaðinu fyrir 2.990 krónur á mánuði, sem greiðast án vaxta á 30 mánuðum,“ sagði Óskar Magnússon, útgefandi Morgunblaðsins.
Hafa verið á vaktinni
Óskar rifjar upp að síðast þegar stúdentum var gert slíkt tilboð seldist allt upp á augabragði og ný sending sem fékkst nokkru síðar seldist líka upp. ,,Við höfum verið á vaktinni og beðið eftir nýjum tækjum og nú höfum við fengið nýjustu iPad-tölvuna, iPad Air, í takmörkuðu magni,“ sagði Óskar. ,,Ég geri ráð fyrir að það falli í frjóan jarðveg að verðið er óbreytt á þessum dögum þegar kröfur eru gerðar um að verð sé ekki hækkað. Samt er nýja tölvan fullkomnari.“IPad Air er þannig 20% þynnri, 28% léttari og 80% hraðvirkari en fyrri gerðir iPad. Rafhlöður eru sagðar endast í tíu tíma. Þráðlaust net er líka hraðvirkara en í eldri gerðum. Nýja tölvan, iPad Air, leysir af hólmi fjórðu kynslóð, iPad 4.