Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru í desember 2013 að jafnaði 185.100 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 176.900 starfandi og 8.200 án vinnu og í atvinnuleit.
Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru í desember 2013 að jafnaði 185.100 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 176.900 starfandi og 8.200 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 80,9%, hlutfall starfandi 77,3% og atvinnuleysi var 4,4%. Samanburður mælinga í desember 2012 og 2013 sýnir að atvinnuþátttaka jókst um 0,8 prósentustig og hlutfall starfandi um 1,6 prósentustig. Hlutfall atvinnulausra minnkaði á sama tíma um 1,1 prósentustig. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Hagstofu Íslands í gær.