Næsta skref Brátt hefjast tökur á stórmyndinni Everest. Ingvar veit ekki hvað tekur við þegar þeim lýkur. „Ég hugsa bara með hlýju til framtíðarinnar.“
Næsta skref Brátt hefjast tökur á stórmyndinni Everest. Ingvar veit ekki hvað tekur við þegar þeim lýkur. „Ég hugsa bara með hlýju til framtíðarinnar.“ — Morgunblaðið/Kristinn
María Margrét Jóhannsdóttir mariamargret@mbl.is Ingvar E. Sigurðsson er einn ástsælasti leikari þjóðarinnar. Hann leikur nú um þessar mundir burðarhlutverk í leikritinu Jeppi á Fjalli sem gengið hefur vonum framar og sýnt verður í Hofi á Akureyri hinn...

María Margrét Jóhannsdóttir

mariamargret@mbl.is

Ingvar E. Sigurðsson er einn ástsælasti leikari þjóðarinnar. Hann leikur nú um þessar mundir burðarhlutverk í leikritinu Jeppi á Fjalli sem gengið hefur vonum framar og sýnt verður í Hofi á Akureyri hinn 1. og 2. febrúar. Á milli sýninga undirbýr Ingvar sig fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Everest sem Baltasar Kormákur leikstýrir og er tekin upp í svissnesku Ölpunum og í London. Blaðamaður tók Ingvar tali og ræddi við hann um Jeppa, rússneska fjallagarpinn sem hann leikur í Everest , listina og velgengnina.

Jeppi er besta skinn

Jeppi á Fjalli er leikrit eftir Ludvig Holberg sem fyrst var sett á svið árið 1722. Það hefur slegið rækilega í gegn hjá landsmönnum og bæta hefur þurft við sýningum. Þessar vinsældir koma Ingvari hins vegar ekki á óvart. „Margir höfðu enga trú á þessu verki og töldu það vera vitleysu að dusta rykið af svona gömlu verki. En eftir að hafa lesið nýju þýðinguna og hitt leikhópinn þá sá ég fljótt að þetta ætti eftir að ganga upp. Þó að það megi kalla þetta vitleysu þá er einnig verið að takast á við siðferðilegar spurningar um hvað sé rétt og rangt, til dæmis hvernig beita megi valdi. Þó að þetta sé skrifað áður en lýðræði kom til sögunnar á Vesturlöndum er alltaf verið að glíma við sömu spurningarnar. Mér þykir alltaf vænna og vænna um Jeppa. Hann er í rauninni besta skinn og er ginntur í að vera leiksoppur,“ segir Ingvar.

Tónlistin í samtölunum

Tónlistin gegnir veigamiklu hlutverki í verkinu en lög og texti eru samin af Megasi í samstarfi við Braga Valdimar Skúlason. Ingvar syngur því mikið í verkinu en hann er ekki óvanur söng. „Ég hef sungið síðan ég var barn. Ég var í barnakór, kirkjukór og karlakór. Þá var ég einnig í kór Leiklistaskólans og í söngnámi þar. Starf leikarans og söngvarans er náskylt. Við erum alltaf að kljást við röddina og túlka eitthvað með ýmsum áherslum og blæbrigðum. Sjálfur nálgast ég leiklistina mikið út frá tónlistinni. Ég hugsa senur út frá takti og það er mikilvægt að gefa ekki aðeins hugsuninni að baki orðunum gaum heldur líka tónlistinni í setningunum og samtölum. Það er auðveldlega hægt að klúðra verki geri maður það ekki.“

Ingvar segist hafa forðast að líkja eftir Megasi þegar kom að söngnum. „Það getur verið að söngurinn hafi verið í hans stíl fyrst þegar verkið var sýnt. Megas semur alla textana sem eru mjög stór hluti af tónlistinni auk þess sem við erum á vissan hátt líkir. Það er því auðvelt að verða óvart svolítið eins og hann. Söngurinn hefur þó þróast meira eftir því sem á líður og maður reynir að gera texta hans að sínum. Megas er æðislegur og krefjandi tónlistarmaður en á sama tíma mjög innihaldsríkur. Það er hægt að fara í ótal áttir með lög hans.“

Lærir rússnesku fyrir hlutverk

Þegar Ingvar er ekki uppi á sviði í hlutverki Jeppa þá er hann að undirbúa sig fyrir tökur á stórmyndinni Everest sem byggist á sönnum atburðum og fjallar um leiðangur þaulvanra fjallgöngumanna sem lenda í hremmingum uppi á Everest árið 1996. Ingvar leggur mikla áherslu á að kynna sér söguna og persónuna, Anatoli Boukreev, sem hann kemur til með að leika.

„Menn eru enn að spyrja sig hvað gerðist þarna og hvers vegna þessir vönu menn tóku slíka áhættu. Eftir því sem ég les meira um Boukreev þá kemst ég að því að þetta var mjög merkilegur maður sem var þarna á öðrum forsendum en aðrir. Hann var eini Rússinn í hópnum og var almennt ekki sáttur við að verið væri að græða á fjallaleiðöngrum sem þessum en eftir að Sovétríkin féllu og hann hætti að njóta fjárstuðnings frá ríkinu varð hann að gerast fjallaleiðsögumaður til þess að geta komist á fjöll. Þrátt fyrir að hafa bjargað lífi nokkurra þarna þá sætti Boukreev gagnrýni fyrir að hafa verið þarna á öðrum forsendum en sumir ætluðust til af honum. Ég ætla hins vegar að verja minn mann út í hið óendanlega.“

Ingvar segir að undirbúningurinn sé bæði krefjandi og gefandi. „Ég þarf að læra rússnesku og kem jafnvel til með það að þurfa að syngja á rússnesku. Hver einasti Rússi mun auðvitað sjá í gegnum það hvað sem ég vanda mig mikið en ég verð þó að sýna að ég hafi lagt mig allan fram. Þá þarf ég einnig að læra á allan útbúnaðinn því þó að ég hafi gengið á fjöll hér heima þá kann ég ekki á allar þessar græjur enda er ekki sama fjall og fjall.“

Má ekki stoppa lengi

Aðspurður hvað sé framundan segir hann allt vera óráðið.

„Manni fellur alltaf eitthvað til. Það má þó ekki líða langur tími á milli verkefna. Ekki vegna þess að ég sé vinnualki heldur vegna þess að leikarastarfið er láglaunastarf. Það er ekkert grín að vera leikari á Íslandi. Þó að maður hafi mikið að gera þá má ekki stoppa lengi. Það er bara þannig.“

Ingvar leggur mikla áherslu á að takast á við krefjandi verkefni og þroska sjálfan sig sem leikara. Þá gegnir undirbúningurinn mjög stóru hlutverki.

„Mér finnst gaman að vinna með skapandi fólki og reyna á kraftana hvort sem þeir eru líkamlegir eða andlegir. Oft hef ég mesta ánægju af undirbúningsvinnunni og með aldrinum verður það sífellt erfiðara að vera óundirbúinn.“

Þykir ekki fínt að hæla sér

Ingvar er hógvær þegar kemur að velgengninni. Hann hlaut riddarakrossinn á nýársdag en er lítið að hugsa um slíkar viðurkenningar.

„Þetta var mjög einlæg og falleg athöfn á Bessastöðum og mér þótti vænt um þetta en maður fer ekkert í vinnuna með einhver verðlaun eða viðurkenningar í huga. Ég var bara alinn þannig upp. Ég ólst upp umvafinn ást og hlýju og það að hæla sér þykir ekki fínt í minni fjölskyldu.“

Ingvar segir velgengnina vera blöndu af tilviljunum og rétta hugarfarinu. „Maður þarf að vera réttur maður á réttum stað. Velgengni mín er ekki bara frá mér komin heldur er ég háður velvilja annarra eins og leikstjóra, leikara og líka minna nánustu.“ En hvar sér Ingvar sig í framtíðinni? „Ég er ekki með neinar ákveðnar hugmyndir. Ég hugsa bara með hlýju til framtíðarinnar og vona að ég verði fullorðinn, hraustur og að allt verði í lagi hjá okkur,“ segir Ingvar.