Kolbeinn Sigþórsson og félagar í meistaraliði Ajax eru komnir í undanúrslit hollensku bikarkeppninnar í knattspyrnu eftir 3:1 sigur á Feyenoord í gærkvöld. Kolbeinn kom inná á 84. mínútu fyrir Bojan Krkic sem skoraði sigurmark Ajax í leiknum.

NEC Nijmegen, lið Guðlaugs Victors Pálssonar, komst líka í undanúrslit með 1:0 sigri á Utrecht en Victor missti af leiknum vegna meiðsla. vs@mbl.is