Unnur Brá Konráðsdóttir alþingismaður hefur verið kjörin formaður þingmannanefndar Hoyvíkursamningsins. Brandur Sandoy þingmaður á færeyska Lögþinginu hefur verið kjörinn varaformaður nefndarinnar.
Á fundinum var möguleg þátttaka Grænlands í Hoyvíkursamningnum rædd og var ákveðið að kanna kosti þess og galla frekar. Málið verður tekið upp að nýju á fundi nefndarinnar sem haldin verður í september síðar á þessu ári, segir í tilkynningu.
Stofnað var til þingnefndar Hoyvíkusamningsins árið 2011. Alþingi Íslands og Lögþing Færeyja tilnefna hvort um sig sex þingmenn í nefndina. Landsþing Grænlands tilnefnir sex þingmenn sem eru áheyrnafulltrúar í nefndinni með málfrelsi.
Ísland og Færeyjar samþykktu Hoyvíkursamninginn árið 2006. Samningurinn tryggir að samkvæmt meginreglu sé frjálst flæði á vörum, þjónustu, fjármagni og fólki á milli landanna.
Auk þess tryggir samningurinn ýmiss konar samstarf landanna, svo sem á sviði menntunar, rannsókna og menningar.