Semja Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips og Zhu Jiandong framkvæmdastjóri COSCO.
Semja Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips og Zhu Jiandong framkvæmdastjóri COSCO.
Fjölmargir fulltrúar erlendra fyrirtækja heimsóttu Eimskip í tilefni af 100 ára afmæli félagsins í síðustu viku.

Fjölmargir fulltrúar erlendra fyrirtækja heimsóttu Eimskip í tilefni af 100 ára afmæli félagsins í síðustu viku. Þar á meðal voru fulltrúar frá COSCO sem er stærsta skipafélag í Kína og fimmta stærsta skipafélag í heimi, samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá Eimskipafélagi Íslands.

„Í tengslum við heimsókn COSCO var undirritaður samningur milli félaganna um samstarf með sérstakri áherslu á flutninga á Norður-Atlantshafi og á alþjóðlega frystiflutningsmiðlun. Einnig var gert samkomulag um framtíðarsamstarf á milli félaganna tengt mögulegum siglingum yfir Norðurheimskautið,“ segir orðrétt í fréttatilkynningu Eimskips.