[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Sviðsljós Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Það má alltaf gera betur í nefndum Alþingis en þeim er ætlað ákveðið sjálfstæði og það er ekki hlutverk forseta þingsins að segja fyrir um með hvaða hætti einstaka þingnefndir nálgast viðfangsefni sín.

Sviðsljós

Hólmfríður Gísladóttir

holmfridur@mbl.is

Það má alltaf gera betur í nefndum Alþingis en þeim er ætlað ákveðið sjálfstæði og það er ekki hlutverk forseta þingsins að segja fyrir um með hvaða hætti einstaka þingnefndir nálgast viðfangsefni sín. Þetta segir Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, aðspurður um vinnubrögð efnahags- og viðskiptanefndar, þegar nefndin fjallaði um svokallaðan bankaskatt á fjármálafyrirtæki. Enn liggur ekki fyrir hver átti hugmyndina að því að miðað yrði við 50 milljarða króna frískuldamark né hvernig sú tala var rökstudd af viðkomandi aðila eða aðilum.

„Ég hef litið á að það sé orðin niðurstaðan af allri þessari umræðu að þessi tala eigi uppruna sinn í efnahags- og viðskiptanefnd og það er auðvitað hún sem ber ábyrgð á málinu eftir að það er komið inn í þingið,“ segir Einar. „Þannig að ég hef gert ráð fyrir því að það séu ákveðnar forsendur sem liggja þar að baki, sem nefndin hefur metið þannig að væru efnislegar,“ segir hann.

Málið hefur vakið spurningar um vinnulag nefnda og afgreiðslu mála í þinginu. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, vakti máls á því í Kastljósi á mánudag að fjárlagafrumvarp hefði verið lagt afar seint fram og gagnrýndi að skattlagningin hefði verið aukin um tíu milljarða milli annarrar og þriðju umræðu, degi fyrir þinglok. Einar segir að til að koma í veg fyrir að mál séu afgreidd í flýti, sé fyrst og fremst mikilvægt að þau séu lögð tímanlega fram.

„Það væri mjög fljótlegt að finna til dæmi þar sem stórar tölur eru afgreiddar í gegnum þingið á skömmum tíma. Ég er ekki að mæla því bót, ég hef þvert á móti kallað eftir því að mál séu lögð nægilega snemma fram þannig að hægt sé að vinna þau gaumgæfilega,“ segir Einar. „Hins vegar vil ég segja að það gefur ekki rétta mynd af störfum þingsins að fjölmörg mál eru afgreidd á stuttum tíma fyrir jól og að vori. Mörg þessara mála hafa verið unnin mánuðum saman í þingnefndum en lokapunkturinn er síðan settur á afgreiðslu málsins áður en haustþinginu eða vorþinginu lýkur,“ segir hann.

Einar segir að síðustu tvö þing hafi komið fram um 160-170 þingmál frá ríkisstjórn á hvoru þingi, en þeim sé ekki öllum lokið. Það gefi augaleið að hversu klárir eða snjallir sem þingmenn séu, muni engir þeirra verða í færum til að þekkja hvert einasta mál til hlítar. „Þess vegna er þessi verkaskipting í þinginu, þess vegna eru flokkarnir með fulltrúa sína í einstökum nefndum, og það er eðlilegt við slíkar aðstæður að menn reiði sig á þær upplýsingar og þær forsendur sem félagar þeirra hafa unnið eftir,“ segir hann.

Jón Þór Ólafsson, formaður Pírata, hefur lagt til að fundir þingnefnda verði teknir upp til að tryggja gegnsæi og að upptökurnar verði aðgengilegar almenningi en Einar kveðst hafa um það efasemdir, þar sem það gæti haft áhrif á að þar fari fram nægjanlega opinskáar umræður. Hann tekur undir það að æskilegt hefði verið ef talan 50 milljarðar hefði komið fram í formlegu erindi efnahags- og viðskiptanefndar til fjármálaráðuneytisins en segir aðalatriði það að tillaga nefndarinnar liggi fyrir í þingskjölum, þ.e. sú niðurstaða að þessi tiltekna tala hafi verið það frískuldamark sem nefndarmenn vildu miða við.

Einar segir ráðuneytin hafa ríka upplýsingaskyldu gagnvart þingmönnum og að þeir geti kallað eftir þeim upplýsingum sem þeir telja sig vanta. „Það er síðan verkefni þingnefndanna að fara yfir þær upplýsingar sem koma frá ráðuneytunum,“ segir Einar. „Og leita eftir sérfræðilegu áliti úr öðrum áttum ef þeir telja það nauðsynlegt.“

Frískuldamarkið
» „Háttvirtur formaður nefndarinnar hefur svarað hvernig þessi tala varð til, held ég. Hún varð til í samtali milli fjármálaráðuneytisins og háttvirts formanns nefndarinnar,“ sagði Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, á þinginu í gær.
» Var hann að svara fyrirspurn frá Kristjáni L. Möller, þingmanni Samfylkingarinnar.