Verndarsjónarmið. V-Enginn
Norður | |
♠K3 | |
♥KD10932 | |
♦DG2 | |
♣G9 |
Vestur | Austur |
♠84 | ♠D7652 |
♥76 | ♥8 |
♦97 | ♦K106543 |
♣ÁD76532 | ♣4 |
Suður | |
♠ÁG109 | |
♥ÁG54 | |
♦Á8 | |
♣K108 |
Suður spilar 6G.
Vestur opnar á 3♣ og norður tuddast inn á 3♥. Hann mætti eiga meira, en það er nú eða aldrei. Suður spyr um lykilspil, fær upp eitt (hjartakóng) og slítur þá talinu með 6G. Þrátt fyrir ofurfitt í hjarta verður umfram allt að vernda laufkónginn. Útspilið er ♦9.
Tíundi slagurinn kemur með útspilinu, sá ellefti liggur í loftinu með svíningu fyrir ♠D, en hvar er sá tólfti?
Ef austur leggur kónginn á ♦D í fyrsta slag rennur sjálfkrafa upp þvingun í spaða og tígli. Látum hann dúkka, sem er mun betri vörn. Sagnhafi tekur öll hjörtun, svínar ♠G (geymir kónginn), leggur niður ♦Á og spilar blindum inn á ♠K.
Ertu með? Heima á sagnhafi ♠ÁG og ♣K, en í borði eru ♦G og ♣G9. Tígli er spilað og austur er dæmdur maður, því hann situr eftir með ♠D7 og ♦K blankan.