Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrstur steini Það er hjákátlegt að vita til þess að sumir þeir, sem þegið hafa gistingu hjá Líknarfélaginu Bergmál, skuli hafa tungur tvær og tala sitt með hvorri.

Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrstur steini

Það er hjákátlegt að vita til þess að sumir þeir, sem þegið hafa gistingu hjá Líknarfélaginu Bergmál, skuli hafa tungur tvær og tala sitt með hvorri. Í máli Karls Vignis er Unnur Kolbrún, formaður Líknarfélagsins Bergmáls, ásökuð um að hafa vitað að hann væri sekur um kynferðisglæpi, sem hún að sjálfsögðu gerði, en hún af góðmennsku sinni tók við honum í félagið. Já, Gróa gamla ætlar sennilega seint í gröfina. Við teljum að þeir félagar sem gerðu þessa göfugu hugsun að veruleika, að stofna þetta líknarfélag, eigi allir að fá orðu, herra forseti, ekki síst Kolbrún. En skemmdu eplin láta ekki á sér standa ef einhver rekur við. Svei skítalykt, skammist ykkar og biðjið góðgerðarmann ykkar afsökunar og hættið að tala illum tungum.

Guðberg Guðmundsson

og Guðný Úlla Ingólfsdóttir.