Þau bestu Skíðamaðurinn Einar Kristinn Kristgeirsson varð í 2. sæti og er lengst til vinstri, Hafdís Sigurðardóttir er íþróttamaður Akureyrar 2013 og til hægri er Ingvar Þór Jónsson íshokkímaður sem varð í 3. sæti í kjörinu.
Þau bestu Skíðamaðurinn Einar Kristinn Kristgeirsson varð í 2. sæti og er lengst til vinstri, Hafdís Sigurðardóttir er íþróttamaður Akureyrar 2013 og til hægri er Ingvar Þór Jónsson íshokkímaður sem varð í 3. sæti í kjörinu. — Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Hafdís Sigurðardóttir spretthlaupari og langstökkvari úr Ungmennafélagi Akureyrar, er íþróttamaður Akureyrar 2013.

ÚR BÆJARLÍFINU

Skapti Hallgrímsson

Akureyri

Hafdís Sigurðardóttir spretthlaupari og langstökkvari úr Ungmennafélagi Akureyrar, er íþróttamaður Akureyrar 2013.

Hafdís bar höfuð og herðar yfir keppinauta sína hér á landi á árinu í spretthlaupum og langstökki. Hún setti þrjú Íslandsmet og vann fjölda Íslandsmeistaratitla.

Kjörinu var lýst í verðlaunahófi Íþróttabandalags Akureyrar, íþróttaráðs og Afreksjóðs Akureyrarbæjar í verðlaunahófi í menningarhúsinu Hofi síðdegis í gær. Hófið var í fyrsta skipti opið öllum bæjarbúum og var margt um manninn.

Hafdís tvíbætti Íslandsmetið í langstökki í sumar og bætti einnig metið í 60m og 300m hlaupi. Hún varð sexfaldur Íslandsmeistari í spretthlaupum og langstökki innan- og utanhúss á árinu; sigraði í öllum hlaupum sem hún tók þátt í á Fróni.

Hafdís var stigahæsta konan í spretthlaupum á árinu í 100m hlaupi á 11,88 sekúndum, 200m hlaupi á 23,81 sekúndu og 400m hlaupi á 54,03 sekúndum.

Einar Kristinn Kristgeirsson úr Skíðafélagi Akureyrar varð annar í kjörinu og Ingvar Þór Jónsson frá Skautafélagi Akureyrar varð þriðji.

Einar Kristinn varð Íslandsmeistari fullorðinna í svigi og stórsvigi, bikarmeistari í karlaflokki og Íslandsmeistari í bæði svigi og stórsvigi í flokki 18–20 ára. Hann var valinn Skíðamaður ársins af Skíðasambandi Íslands.

Ingvar Þór Jónsson vann bæði deildarmeistara- og Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí í fyrra í frumraun sinni sem þjálfari meistaraflokks hjá Skautafélagi Akureyrar. Hann er jafnframt fyrirliði landsliðsins og var valinn íshokkímaður ársins af Íshokkísambandinu, í fjórða skipti.

Það er aðalstjórn ÍBA sem kýs íþróttamann ársins á Akureyri ásamt fulltrúum fjölmiðla í bænum.

Athyglisvert er að áttunda árið í röð er kona kjörin íþróttamaður Akureyrar. Síðasti karlinn sem hlaut nafnbótina var Guðlaugur Halldórsson akstursíþróttamaður 2005.

Frá 2006 hefur Bryndís Rún Hansen sundkona þrisvar orðið fyrir valinu, skíðakonan Dagný Linda Kristjánssdóttir í tvígang og knattspyrnukonurnar Rakel Hönnudóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir einu sinni hvor.

Fimm manns fengu í gær heiðursviðurkenningar íþróttaráðs Akureyrarbæjar, fyrir áratuga farsælt starf í þágu íþrótta á Akureyri. Það voru Bryndís Þorvaldsdóttir, Dýrleif Skjóldal Ingimarsdóttir, Guðmundur Víðir Gunnlaugsson, Halldór Magnús Rafnsson og Sigurður Stefánsson.

Íþróttaráð veitti jafnframt þeim íþróttafélögum sem áttu Íslandsmeistara og/eða landsliðsfólk á árinu 2013 viðurkenningar og styrki. Alls eignuðust 12 íþróttafélög á Akureyri 171 Íslandsmeistara og 11 akureyrsk íþróttafélög áttu 102 landsliðsmenn á árinu. Skautafélag Akureyrar á flesta einstaklinga í báðum þessum hópum, 85 Íslandsmeistara og 36 landsliðsmenn.

Ekki verður byggt þak yfir áhorfendastúku á Þórsvellinum á næstu árum. Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar hefur lýst því yfir í kjölfar erindis frá Knattspyrnusambandi Íslands.

Þór fékk í fyrra undanþágu frá Leyfisráði KSÍ til þess að leika á Þórsvellinum í Pepsi-deildinni, að gefnu því skilyrði að framkvæmdaáætlun um byggingu fyrrgreinds þaks yfir stúku fyrir keppnistímabilið 2014 lægi fyrir. Sú áætlun er ekki til og verður ekki til.

Nú er stóra spurningin: fá Þórsarar heimild leyfisráðs KSÍ til þess að leika á vellinum í Pepsi-deild karla á komandi sumri? Ef ekki munu heimaleikir liðsins ekki fara fram á Akureyri...

Á undanförnum árum hefur Akureyrarbær byggt upp mjög góða aðstöðu til knattspyrnuiðkunar, segir í fundargerð stjórnar Fasteigna Akureyrar. „Má þar helst nefna Bogann, yfirbyggðan gervigrasvöll í fullri stærð, sem kostaði um 1,3 milljarða, nýr völlur og 1000 manna stúka á Þórsvelli, sem kostaði um 1,1 milljarð, 700 sæta stúka á Akureyrarvelli var endurbyggð og aðstaða löguð fyrir um 110 [milljónir] kr. Þann 19. júní sl. var svo vígður gervigrasvöllur í fullri stærð á KA-svæðinu fyrir um 260 [milljónir] kr. allt á verðlagi júní 2013.“

Stjórn Fasteigna Akureyrar bendir einnig á að gerðir hafi verið hefðbundnir gervigrasvellir við alla skóla bæjarins á árunum 2004-2009, nema í Hrísey og Grímsey, fyrir um 300 [milljónir] kr. á verðlagi júní 2013. „Það er því ljóst að byggt hefur verið upp fyrir knattspyrnuiðkun á undaförnum árum fyrir rúma 3 milljarða á verðlagi júní 2013.“

Formaður stjórnar Fasteigna Akureyrar er Oddur Helgi Halldórsson, bæjarfulltrúi L-lista.

Áætla má að rekstur þessara mannvirkja kosti um 300 milljónir kr. á ári. „Í gildandi framkvæmdaáætlun bæjarins fyrir árin 2014-2017 er gert ráð fyrir að verja um 355 [milljónum] kr. til uppbyggingar æskulýðs- og íþróttamála. Í þeirri áætlun er ekki gert ráð fyrir þaki á Þórsstúkuna,“ segir í fundargerðinni.

Fyrsta sýning ársins verður opnuð í Sjónlistamiðstöðinni á laugardaginn, í Listasafninu á Akureyri. Þar sýnir Halldór Ásgeirsson ný og eldri verk sem kallast á og mynda innbyrðis tengsl. Sýninguna kallar hann Tengsl – önnur ferð.

Gjörningur verður á Torfunefsbryggju kl. 15 á laugardaginn í tengslum við sýningu Halldórs; siglt verður inn Eyjafjörðinn með blaktandi myndfána sem Karlakór Akureyrar–Geysir tekur við og kemur fyrir á þaki Listasafnsins.

Á opnuninni í Listasafninu verða leiklesin brot úr nokkrum örleikritum eftir Kjartan Árnason en þau verða lesin í heild á sunnudaginn kl. 14. Flytjendur: Arnar Jónsson, Randver Þorláksson, Sigurður Skúlason og Helga E. Jónsdóttir.

Hljómsveitin Grísalappalísa heldur fyrstu tónleika ársins á föstudagskvöld og Kaleo stígur á svið á staðnum á laugardagskvöldið.

Frestur til að skila inn tillögum í samkeppni um nýtt kennileiti fyrir Grímsey og heimskautsbauginn rennur út 31. janúar. Akureyrarbær efndi til samkeppninnar í samvinnu við Hönnunarmiðstöð Íslands. Leitað er að myndrænu tákni fyrir eyjuna sem gæti orðið að aðdráttarafli í sjálfu sér og hægt að nota á ólíka vegu, t.d. við gerð minjagripa.

Á laugardaginn verða sýningar og opnar vinnustofur í Portinu í Listagili. Gallerí Ískápur og Geimdósin standa að sýningaropnunum og einnig verður samsýning listamanna vinnustofanna í anddyrinu en í húsnæðinu öllu starfa nú um 20 listamenn. Portið er í Kaupvangsstræti 12, Listasafnshúsinu, og er gengið inn úr portinu baka til.