Ekki hefur verið ákveðið hvernig staðið verður að skipulagningu Sementsreitsins. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri segir að farið verði yfir niðurstöður íbúaþingsins sem haldið var um helgina og hugmyndirnar flokkaðar og greindar.

Ekki hefur verið ákveðið hvernig staðið verður að skipulagningu Sementsreitsins.

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri segir að farið verði yfir niðurstöður íbúaþingsins sem haldið var um helgina og hugmyndirnar flokkaðar og greindar. Eftir það verði næst skref ákveðin.

Regína segir ekki ákveðið hvort farið verði í almenna samkeppni um skipulag svæðisins eða hvort leitað verði til ákveðinna arkitekta um að skipuleggja svæðið. Þá er verið að skoða hvaða form henti best til að stýra verkefninu, hvort stofnað verði þróunarfélag eða unnið að því eingöngu á vegum bæjarins.