Ingólfur í versluninni Sturlu, sem selur föt á herra, dömur og börn frá merkjunum Scotch & Soda og Maison Scotch.
Ingólfur í versluninni Sturlu, sem selur föt á herra, dömur og börn frá merkjunum Scotch & Soda og Maison Scotch. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ingólfur Arnar Magnússon rafvirki lét drauminn rætast og opnaði herrafataverslun. Ingólfur segir mikilvægt að breyta til og víkka sjóndeildarhringinn. Hann rekur nú herra- og kvenfataverslunina Sturlu á Laugavegi. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is

Mig dreymdi alltaf um að opna fatabúð og eftir því sem leið á aldurinn fékk ég meiri áhuga á að fara út í eigin rekstur,“ segir Ingólfur sem starfaði áður sem rafvirki. Það var eftir að hafa unnið við rafmagn í Hörpu sem Ingólfur fékk nóg af iðnaðarmennsku og leigði sér notalegt verlsunarhúsnæði á Laugavegi, án þess þó að vera búinn að ákveða hvað hann ætlaði að versla með. Síðan hófst leit að hinu fullkomna herrafatamerki. „Ég byrjaði kannski öfugum megin. Ég hóf leit að flottum merkjum og öðru slíku eftir að hafa leigt húsnæðið. Þegar ég síðan sá þetta merki, Scotch & Soda, þá lá ég bara kylliflatur fyrir því.“

Hvernig var að skipta úr því að vera rafvirki yfir í búðarrekstur?

„Ég held að það sé hollt fyrir alla að skipta um umhverfi einhvern tíma á lísfleiðinni og hugsa hlutina öðruvísi, maður verður svolítið að víkka sjóndeildarhringinn,“ segir Ingólfur og bætir við að iðnaðarmennskan sé svolítið sérstök og lokuð. Þetta er mikið karlaumhverfi og honum fannst æðislegt að breyta til. „Það sparkaði mér svolítið af stað að byrja á því að leigja og það tók mig einn og hálfan mánuð að ná merkinu.“ Scotch & Soda eru með yfir hundrað sérverslanir út um allan heim og segir Ingólfur merkið nákvæmlega það sem hann hafi verið að leita að; þægileg og flott föt fyrir kalmenn sem henta bæði á barinn og í brúðkaup. „Ég ætlaði mér ekki að selja jakkaföt því nóg er úrvalið af þeim fyrir. Ég er kominn með mjög góðan kúnnahóp hjá strákunum og finn að þeir nenna ekki að vera í jakkafötum. Ef þú ert með góðan jakka og flottar buxur ertu bara helvíti fínn. Jakkinn hefur aðeins meira notagildi líka.“ Ingólfur tók nýverið inn kvenfatamerkið Maison Scotch eftir miklar fyrirspurnir.

Fatnaður er áhugamál

Fyrir utan Sturlu á Laugavegi hangir stór bassatromma sem hefur vakið mikla athygli en Ingólfur lagði mikið upp úr hönnun og umgjörð verslunarinnar. „Ég lagði í lógóið og vildi gera það flott. Fólk hefur tjáð mér að það sé eins og búðin hafi alltaf verið hérna á Laugaveginum, eins og hún sé rótgróin.“ Nafnið Sturla hefur einnig vakið athygli en Ingólfur vildi að verslunin héti nafni sem væri íslenskt og gengi bæði fyrir herra og dömur. „Það kom gamall maður hingað til mín um daginn, gekk beint að mér og sagði: „Ég ætla bara að þakka þér kærlega fyrir.“ Hvað, segi ég, „Að búðin skuli heita íslensku nafni.“ Svo fór hann út,“ segir Ingólfur og hlær.

Spurður hvort honum þyki íslenskir karlmenn vel klæddir segist Ingólfur alltaf hafa litið á fatnað sem áhugamál.

„Stundum er alveg hægt að gera eitthvað fyrir sjálfan sig án þess að það kosti of mikið. Sumir kaupa sér veiðistangir á yfir tvö hundruð þúsund en finnst gallabuxur á tuttugu þúsund of dýrt. Þetta er allt spurning um verðmat og áhugamál.“