Gabriel Axel, handritshöfundur og leikstjóri hinnar margverðlaunuðu kvikmyndar Gestaboð Babettu, lést í hárri elli á dögunum. Fyrrnefnd kvikmynd er í uppáhaldi hjá mörgum matgæðingnum en hún hlaut m.a.

Gabriel Axel, handritshöfundur og leikstjóri hinnar margverðlaunuðu kvikmyndar Gestaboð Babettu, lést í hárri elli á dögunum. Fyrrnefnd kvikmynd er í uppáhaldi hjá mörgum matgæðingnum en hún hlaut m.a. Óskarsverðlaunin árið 1988, BAFTA-verðlaun og fleiri viðurkenningar.

Er fyllilega tilefni til að endurnýja kynnin við myndina við slík tímamót. Er fyrir löngu orðið sígilt hvernig hinni frönsku eldabusku tókst að kynda rækilega upp í bragðlaukum íbúa danska sjávarþorpsins, með ógleymanlegri veislu.