Myndlistarkonan Thora Karlsdóttir opnar sýningu sem hún kallar „Hver er lykillinn?“ í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri í dag, laugardag, klukkan 15.
Um er að ræða innsetningu í rými Mjólkurbúðarinnar og hún fjallar um lífið sjálft og leitina að lífshamingjunni. Myndlistarmaðurinn notar lykla í ýmsum formum og leikur sér með efni og ímyndir, margræð tákn, á huglægan og hlutlægan hátt.
Thora Karlsdóttir útskrifaðist fra Europaische Kunst Akademi of Fine Arts í fyrra. Í Listagilinu er vinnustofa, sýningarými og heimili hennar.
Þetta er önnur einkasýning Thoru á Íslandi en hún hefur sýnt víða erlendis. Síðar á árinu mun hún sýna í Þýskalandi og Lúxemborg.