Magni Bernhardsson, kírópraktor hjá Kírópraktorstofu Íslands, segir að stór hluti viðskiptavina sinna vinni svokölluð kyrrsetustörf.
Magni Bernhardsson, kírópraktor hjá Kírópraktorstofu Íslands, segir að stór hluti viðskiptavina sinna vinni svokölluð kyrrsetustörf. — Morgunblaðið/Golli
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Stór hluti þeirra sem leita til Kírópraktorstofu Íslands með stoðkerfisvandamál er fólk sem starfar í kyrrsetustörfum.

Stór hluti þeirra sem leita til Kírópraktorstofu Íslands með stoðkerfisvandamál er fólk sem starfar í kyrrsetustörfum. Mannkynið sefur að meðaltali rúma sjö og hálfan klukkutíma á hverri nóttu en situr í rúma níu klukkutíma við vinnu, tölvu og sjónvarpsgláp. Kyrrseta hefur gríðarleg áhrif á líkamann. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is

Kyrrsetuvandamál eru þekkt og fylgikvillar of mikillar kyrrsetu hafa mikil áhrif á líkamann. Trúlega væri hægt að hafa þessa síðu einungis með vandamálum tengdum því hvað við erum orðin löt að standa í lappirnar. Þess má geta að þessi grein er skrifuð standandi svo það sé á hreinu. Kannski er best að lesa hana líka á tveimur jafnfljótum.

Magni Bernhardsson, kírópraktor hjá Kírópraktorstofu Íslands, segir að stór hluti viðskiptavina sinna vinni svokölluð kyrrsetustörf og leiti til þeirra vegna stoðkerfisvandamála. „Við mikla kyrrsetu missir hryggurinn hreyfigetu sína, stífleiki og óstöðugleiki myndast í nærliggjandi vöðvum sem orsakar að sumir vöðvar verða veikari en aðrir og það leiðir oft til langvarandi verkja í mjóbaki,“ segir hann.

Konur eru í sérstaklega miklum áhættuhóp þegar kemur að kyrrsetu samkvæmt rannsókn frá American Cancer Society. Þar kemur fram að konur sem sitja allan daginn eru 94% líklegri að deyja fyrir aldur fram en þær sem vinna ekki kyrrsetustarf. Líkurnar hjá körlum eru 48%.

Algjör kyrrseta lætur vöðva líkamans nánast fara að sofa þannig að þeir missa hæfileikann að framleiða prótein sem brýtur niður fitu. Líkaminn brennir rúmlega einni kílókalóríu á mínútu við algera kyrrsetu sem er aðeins meira en ef viðkomandi væri látinn. Fólk sem fer og fær sér kaffi eða þarf að hreyfa sig reglulega brennir að sjálfsögðu meira. Einfalt reikningsdæmi má skoða þessu máli til stuðnings. Ein kaloría x60 mínútur x24 klukkustundir = 1.440 kílókaloríur/24 klst. Niðurstaðan er 60 kílókaloríur á klukkutíma sem gerir ein kílókaloría á mínútu. Það er ekki mikil brennsla.

Tölvuháls og vöðvabólga

Ef setið er of lengi sést það ekkert endilega utan á okkur þó að magavöðvar slappist niður og líkaminn verði bústnari. Líffæri inni í líkamanum skemmast hægt og rólega. Oft er tekið dæmi um bát sem ætlar að leggja af stað í 1.000 mílna leiðangur. Staðsetningartækin í honum eru vitlaus um eina gráðu. 1.000 mílum síðar er hann ansi langt frá áfangastað. Eins með líkamann. 20 ára kyrrseta fer illa með líkamann.

Starf kírópraktora er að finna orsök og leiðrétta stoðkerfisvandamál. Þeir kenna fólki að gera réttu æfingarnar og framkvæma þær rétt til þess að stöðugleiki skapist og hryggstaða haldist.

„Vöðvabólga er mjög algeng hjá fólki sem vinnur við tölvu allan daginn, hún getur einnig leitt til krónískra höfuðverkja. Einnig er svokallaður tölvuháls algengur hjá kyrrsetufólki en þá hefur myndast óstöðugleiki milli vöðva framan og aftan í hálsi og fólk missir höfuðið fram.“

Í grófum dráttum á sveigjan í hálsinum að endurspegla sveigjuna í mjóbakinu þegar viðkomandi horfir á mynd af hryggnum. Í tölvuhálsi er sveigjan í hálsinum í litlu samræmi við mjóbakið. Slík skekkja skapar ýmis vandamál og leiðir af sér mikið álag á axlir og bak ásamt því að valda höfuðverkjum og bólgum. Magni fær einmitt töluvert af fólki til sín með stöðugan höfuðverk. „Jafnframt er stífleiki í brjóstbaki annað stoðkerfisvandamál hjá kyrrsetufólki, en þá hafa brjóstvöðvarnir styst og fólk missir axlirnar fram, verður hokið og fær verki í brjóstbakið.“

Frá 1980 hafa Bandaríkjamenn æft jafn mikið og jafn oft. Þeir sitja hinsvegar meira. Á þeim tíma hefur offita í landinu tvöfaldast. Niðurstaðan er því að standa upp oftar, fá sér æfingabolta til að sitja á, teygja og almennt að hugsa betur um sig. Það er erfitt að fjárfesta í heilsunni þegar hún er farin.