Chris Pine er nýtt andlit ilmsins en hann á íslenska kærustu.
Chris Pine er nýtt andlit ilmsins en hann á íslenska kærustu.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Bandaríski leikarinn Chris Pine er nýja andlit eins mest selda herrailms heims, Armnai Code.

Bandaríski leikarinn Chris Pine er nýja andlit eins mest selda herrailms heims, Armnai Code.

Chris hefur mikið verið í fréttum hér á landi undanfarið en kærasta hans, Íris Björk Jóhannesdóttir, er íslensk fegurðardrottning og hafa erlendir fjölmiðlar verið duglegir við að birta myndir af þeim saman.

Ítalska tískuhúsið Armani valdi Chris sem andlit ilmsins því hann býr yfir ákveðnum þokka og glæsileika sem á fullkomlega við ilminn sem er þokkafull blanda meðal annars af ólífutré, bergmont og sítrus.

Ilmurinn skilgreinir fágaðan nútímamann.

Chris Pine er meðal annars þekktur fyrir leik sinn í kvikmyndunum Star Trek og This Means War.