Helga Lára Haraldsdóttir opnar sýningu í sal Íslenskrar Grafíkur að Tryggvagötu 17, hafnarmegin, á laugardag klukkan 16.
Helga Lára Haraldsdóttir opnar sýningu í sal Íslenskrar Grafíkur að Tryggvagötu 17, hafnarmegin, á laugardag klukkan 16. Helga sýnir þar texta- og ljósmyndaverk þar sem leitast er við að varpa nýju ljósi á eða vekja athygli á orðum og orðasamböndum með því að tengja þau myndum.