Jón Viktor Gunnarsson er Skákmeistari Reykjavíkur eftir spennandi keppni á Skákþinginu, sem hófst í byrjun janúar og lauk í síðustu viku. Jón varð efstur ásamt Einari Hjalta Jenssyni.
Jón Viktor Gunnarsson er Skákmeistari Reykjavíkur eftir spennandi keppni á Skákþinginu, sem hófst í byrjun janúar og lauk í síðustu viku. Jón varð efstur ásamt Einari Hjalta Jenssyni. Þeir hlutu átta vinninga af níu mögulegum en Jón Viktor var sæmdur titlinum eftir stigaútreikning. Einar Hjalti varð einnig efstur á Haustmót TR og er á mikilli siglingu. Röð efstu manna á mótinu var að öðru leyti þessi:

3. Oliver Aron Jóhannesson 7 v. 4.-6. Mikhael Jóhann Karlsson, Loftur Baldvinsson og Haraldur Baldursson 6½ v. 7.-13. Davíð Kjartansson, Lenka Ptacnikova, Sigurbjörn Björnsson, Þorvarður Ólafsson, Jón Trausti Harðarson, Stefán Bergsson og Vignir Vatnar Stefánsson 6 v.

Ýmsar niðurstöður má lesa úr þessu móti en athygli vekur góð frammistaða piltanna úr Rimaskóla, Olivers Arons og Jóns Trausta, og hins tíu ára gamla Vignis Vatnars Stefánssonar. Af efstu mönnum hækkuðu Jón Trausti, Einar Hjalti, Loftur Baldvinsson og Vignir Vatnar myndarlega á stigum.

Af hálfu TR var vel staðið að mótinu í hvívetna, skákir voru aðgengilegar degi eftir að umferð lauk, svo dæmi sé tekið.

Frábær frammistaða Veroniku á Gíbraltar

Undanfarin ár hefur opna mótið á „Klettinum“, þ.e. Gíbraltar, verið það vinsælasta meðal skákmanna og í ár flykktust þangað nafntogaðir kappar. Ivantsjúk, Cheparinov og Vitiugov deildu efsta sætinu, hlutu allir átta vinninga af tíu mögulegum í hópi meira en 250 keppenda; eftir aukakeppni var Cheparinov úrskurðaður sigurvegari.

Magnús Kristinsson bauð dóttur sinni, Veroniku Steinunni, í þetta ferðalag á framandi slóðir þar sem apar leika við hvern sinn fingur. Feðginin voru einu fulltrúar Íslands á Gíbraltar og Veronika náði eftirminnilegum árangri og vann til góðra verðlauna í flokki keppenda undir 2.050 elo-stigum. Hún fékk fjóra vinninga af tíu mögulegum, tefldi upp fyrir sig allt mótið og náði árangri sem reiknast upp á 2.010 elo-stig en hennar stig fyrir mótið voru 1.561 elo.

Veronika tók þátt í Evrópumóti barna og unglinga í Svartfjallalandi fyrir áramótin og undirbúningur hennar fyrir það mót er að skila sér núna. Eftirfarandi skák sem tefld var í 3. umferð er til vitnis um það:

Tim R. Spanton (England) – Veronika Magnúsdóttir

Reti byrjun.

1. c4 Rf6 2. g3 c6 3. Rf3 d5 4. b3 Bf5

Biskupinn er oft hafður á g4 en þetta er ágætt líka.

5. Bb2 Rbd7 6. Bg2 h6 7. 0-0 e6 8. d3 Be7 9. Rbd2 0-0 10. He1 Hc8 11. e4 Bh7 12. e5 Re8 13. d4 Rc7

Þótt svartur standi þröngt á hann góð færi náist að opna taflið með – c5. Hér hefði verið best að loka taflinu með 14. c5 en hvítur velur ómarkvissan leik.

14. Bh3? c5! 15. Hc1 cxd4 16. Rxd4 Rc5 17. Bf1 Rd3 18. Bxd3 Bxd3 19. He3 Bh7 20. c5 Ra6 21. c6 Db6 22. cxb7 Dxb7 23. a3 Hxc1 24. Dxc1 Rc5 25. Hc3 Db6 26. Df1

- Sjá stöðumynd -

26.... Ra4!

Skemmtileg vending, annar góður leikur var 26.... a5.

27. Hc6 Db8 28. Bc1 Rc5!

„Músagildru-þemað“ er hér komið fram, riddarinn hleypir hróknum inn til c6 en lokar svo á hann aftur með því að stökkva til baka. Veikleikinn á d3 reynist erfiður.

29. f4 Rd3 30. R2f3 Hc8 31. f5 Hxc6 32. Rxc6 Bc5 33. Kg2 Dxb3 34. fxe6 fxe6 35. Rd2 Dc2 36. Rd8 Be4+ 37. Kh3 Rf2+ 38. Kh4 Be7+

– og hvítur gafst upp, 39. Kh5 er svarað með 39.... Bg6 mát.

Helgi Ólafsson

helol@simnet.is